Auglýsing
Gratineraðar kartöflur, í ofni, gratin kartöflugratín
Gratineraðar kartöflur

Gratineraðar kartöflur

Gratineraðar kartöflur eru góðar með hinum ýmsu réttum, til dæmis lambalæri. Stundum blanda ég saman bökunarkartöflum og venjulegum. Ostaenda er upplagt að frysta og rífa yfir. Kartöflugratínið verður enn betra með því að rífa örlítið af gráðaosti yfir. Talandi um gráðaost…. þið sem viljið hann á pitsurnar ykkar en verið pirruð yfir því hversu blautur hann er og erfitt að mylja hann yfir pitsuna, gott er að rífa frosinn gráðaost með rifjárni beint yfir hana.

KARTÖFLURGRATÍN

.

Gratineraðar kartöflur

2-3 bökunarkartöflur

1 laukur

3 hvítlauksrif

1/4 l rjómi

salt og pipar

1-2 dl rifinn ostur

Flysjið kartöflurnar, skerið þær í tvennt (langs) og í þunnar sneiðar. Skerið laukinn í þunnar sneiðar, merjið hvítlauksrifin. Blandið vel saman og setjið í eldfast form. Kryddið með salti og pipar og hellið rjómanum yfir. Dreifið rifna ostinum yfir. Bakið í 170° heitum ofni í um 45 mín.

KARTÖFLURGRATÍN

.

Auglýsing