Hægelduð hreindýrasteik

Safarík hreindýrasteik með einiberjum, blóðbergi og bláberjum – glæsilegur hátíðarmatur

0
Auglýsing
Hægelduð hreindýrasteik er safarík og bragðmikil villibráð sem sómir sér vel á hátíðarborðið.

Hægelduð hreindýrasteik

Safarík hægelduð hreindýrasteik með einiberjum, blóðbergi og bláberjum er sannkallaður hátíðarmatur. Með góðri sveppasósu, sætkartöflumús og fersku salati verður úr glæsileg veislumáltíð.

Mikið lifandis ósköp sem hreindýrasteik er góð. Það er alltaf gaman að gera tilraunir í matseldinni. Oftast hef ég brúnað hreindýrakjötið á pönnu áður en það fer í ofninn, en í þetta sinn prófaði ég að sleppa því og setja kjötið beint í ofninn við lágan hita. Útkoman var einstaklega safarík og góð.

Auglýsing

– HREINDÝR  – KJÖT  – ÍSLENSKT  – EINIBER  – SÆTKARTÖFLUMÚS  – RJÓMASVEPPASÓSA  – English –

Hægelduð hreindýrasteik

2,2 kg hreindýravöðvi
1/3 dl einiber, mulin
2 msk blóðberg
2–3 msk villibráðakrydd
bláber eftir smekk
salt og pipar
1 dl olía

Takið hreindýravöðvann úr ísskápnum og kryddið hann með muldum einiberjum, blóðbergi, villibráðakryddi, bláberjum, salti og pipar. Setjið olíuna í botninn á eldföstu móti og leggið kjötið í mótið.

Eldið við 50°C í 2 klukkustundir. Hækkið þá hitann í 80°C og eldið áfram í 40 mínútur. Hækkið loks í 120°C og eldið í um 30 mínútur til viðbótar.

Takið kjötið úr ofninum og látið það hvíla í um 10 mínútur áður en það er skorið.

Berið hreindýrasteikina fram með jólasalati, sætkartöflumús og sveppasósu með bláberjasultu.

Hægelduð hreindýrasteik er safarík og bragðmikil villibráð sem sómir sér vel á hátíðarborðið.

Fleira áhugavert:

– Kjöt  – Vegan  – Föstudagskaffið  – Bananar  –  Glútenlaust –  Pasta  – Rabarbari  – Akureyri — Pylsur — Rauðkál —

Fyrri færslaSveppapaté
Næsta færslaKvennakór Ísafjarðar – klúbbréttir sem segja sex