
Kaffið er hrein og bein munaðarvara
Kaffi hefur lengi verið Íslendingum kærkominn sopi, bæði hversdags og á hátíðarstundum. En ekki voru allir á eitt sáttir um ágæti þess. Í Matreiðslubók fyrir fátæka og ríka frá 1916 var kaffið kallað „hrein og bein munaðarvara“ — og lesningin er bæði fróðleg og dálítið brosleg í dag.
— JÓNINNA SIGURÐAR — KAFFI – DÚKAR — ÍSLENSKT — LAMB — GÖMUL HÚSRÁÐ — HELGA SIGURÐAR — Kaffibætir –
„En svo er eitt, sem vert er að spara, og það er kaffi. Kaffið er hrein og bein munaðarvara, því að í því er engin næring. Víða hér á landi er sá ávani kominn á, að stöðugt er verið að sulla í sig kaffi, bæði með máltíðum og milli þeirra. Það munu eigi miklar ýkjur, að á fjölda mörgum heimilum sé kaffið borið fram þrisvar til fórum sinnum á dag. Þessi óþarfi þarf að leggjast niður, því að of mikil kaffidrykkja veiklar tógarnar og meltingarfærin. Og allir vel viti bornir menn eiga þar að auki að sjá sóma sinn í því að kasta ekki peningum sínum á glæ.”
-Matreiðslubók fyrir fátæka og ríka eptir Jóninnu Sigurðardóttur – 1916

🇮🇸
Fleira áhugavert:
– Hrísgrjónagrautur á laugardegi – Fiskbollur – hin klassíska góða uppskrift – Skúffukaka sem klikkar ekki – Sykurbrúnaðar kartöflur – Hafragrautur – Draumaterta, dásamlega góð – Ostahorn, best nýbökuð — Lúðvík II konungur Bæjaralands –

