Rabarbarapæ með bláberjum, súkkulaði og marsipani

Einfalt og ómótstæðilegt rabarbarapæ með bláberjum, súkkulaði og marsipani

2
Auglýsing
Í kaffi hjá Carolu. Rabarbarapæi með bláberjum, súkkulaði og marsipani

Rabarbarapæ með bláberjum, súkkulaði og marsipani

Súr rabarbarinn, safarík bláberin, sætt marsipanið og súkkulaðið mynda ómótstæðilega blöndu í þessu einfalda og fljótlega rabarbarapæi. Pæið er dásamlegt volgt með þeyttum rjóma eða góðum vanilluís og hentar jafnt með kaffinu sem eftirréttur.

CAROLA  – RABARBARAUPPSKRIFTIR   — HRÁTERTUR   — BLÁBER   — TERTUR  —

Auglýsing

.

Rabarbarapæ með berjum og marsipani

Rabarbari, um 4–5 leggir
1 dl bláber
1 dl gott súkkulaði, grófsaxað
Marsipan eftir smekk, rifið eða skorið í litla bita

200 g smjör
2 dl sykur
1 tsk. lyftiduft
2 dl hveiti
1 tsk. vanilla eða vanillusykur
2 egg

Hitið ofninn í 170°C.

Skolið og hreinsið rabarbarann og skerið hann í 1–2 cm bita. Dreifið rabarbaranum í eldfast form þannig að hann þeki botninn vel.

Stráið bláberjum, söxuðu súkkulaði og marsipani jafnt yfir rabarbarann.

Bræðið smjörið í potti og látið það kólna örlítið. Blandið sykri, lyftidufti, hveiti og vanillu saman við. Bætið eggjunum að lokum út í og hrærið þar til deigið er slétt og vel blandað.

Hellið deiginu jafnt yfir rabarbarann og fyllinguna.

Bakið í 25–30 mínútur, eða þar til pæið er orðið fallega gullið að ofan.

Berið rabarbarapæið fram volgt með þeyttum rjóma eða vanilluís.

Fleira áhugavert:

–  Matarborgir  –  Pasta  – Klúbbaréttir  –  Miðjarðarhafið  –  Rjómatertur  –

SaveSave

SaveSaveSaveSave

Fyrri færslaBlómkálsmús
Næsta færslaAnanas í ofni

2 athugasemdir

  1. Can this be translated from Icelandic to English using American measurements??

  2. Já þarna kemur ein útfærsla enn….ég nota stundum epli í stað rabbabara og hræri gjarnan súkkulaði dropum út í deigið um leið og ég tek pottinn af .Súkkulaðið bráðnar gjarnan svolítið og litar kökuna um leið…einnig gott að skipta kókosmjöli út fyrir hluta af hveitinu…..alltaf hægt að fabulera með þessa uppskrift og hún bregst manni aldrei…og sjaldan afgangur á fatinu…..get seint hætt að dásama þessa snilld…..

Comments are closed.