
Rommkúluterta
Það er eitthvað alveg sérstakt við tertur sem sameina marengs, rjóma og súkkulaði – og já, þessi rommkúluterta slær í gegn í hvert einasta skipti. Hún er bæði létt og stökk á sama tíma og svo þetta einstaka rommkúlubragð.
Rice Krispies gefa botnunum skemmtilega áferð og Daim-kurl bætir við léttu karamellukrönsi. Þetta er svona terta sem hverfur hratt af borðinu.
— ROMMKÚLUR — TERTUR — MARENGS — DAIM — RICE KRISPIES —
.
Það er Álfhildur Jónsdóttir á Ísafirði sem á heiðurinn af Rommkúlutertunni, SJÁ HÉR.
Rommkúluterta
Botnar
5 eggjahvítur
350 g sykur
3,5 bollar Rice Krispies (létt mulið)
2 tsk lyftiduft
Eggjahvítur eru stífþeyttar fyrst, svo er sykri bætt smátt og smátt útí meða þeytt er áfram.
Setjið Rice Krispies í poka og myljið létt með höndunum.
Bætið lyftidufti út í pokann og hristið saman.
Blandið varlega saman við marengsinn.
Skiptið í tvo botna og bakið við 150–160°C þar til þeir eru ljósir og stökkir.
Kælið alveg.
Hægt er að geyma botnana í nokkra daga í loftþéttum poka á þurrum stað.
Rommkúlukrem
1 dl rjómi
110 g rommkúlur
100 g rjómasúkkulaði
2 eggjarauður
Hitið rjóma í potti við meðalhita.
Bætið rommkúlum og súkkulaði út í og látið bráðna saman.
Þeytið eggjarauður vel í hrærivél.
Hellið heitri blöndunni rólega út í eggjarauðurnar á meðan þeytt er.
Fylling
500 ml þeyttur rjómi
30 rommkúlur, saxaðar
Blandið rommkúlum varlega saman við rjómann.
Samsetning
Botn
Smá rommkúlukrem
Rjómi með rommkúlum
Þunnt lag af rjóma
Smá Daim-kurl yfir
Annar botn ofan á
Rommkúlukrem hellt/trussað yfir
Skreytt með jarðarberjum (og gjarnan meira Daim-kurli).
Berið fram vel kælda með góðu kaffi – eða jafnvel smá espresso.
Fleira spennandi:
— Djúpmannabúð — Ísafjörður — Steikt andalæri — Vöffluuppskrifin besta — Hjónabandssælan — Múffur með eplum og haframjöli — Veislukaffi á Akureyri — Borðsiðanámskeið —
