Kalt kartöflusalat með ólífum, fetaosti og beikoni

Sumarlegt kartöflusalat með fetaosti, ólífum og sólþurrkuðum tómötum

0
Auglýsing
Kalt kartöflusalat með ólífum, fetaosti og beikoni

Kalt kartöflusalat með ólífum, fetaosti og beikoni

Bragðmikið og rustic kartöflusalat sem hentar jafnt með grillmat, í matarboð eða sem léttur kvöldverður. Best er að nota góðar kartöflur og extra virgin ólífuolíu – Já og ekki spara dillið.

KARTÖFLUSALÖTGRILLKJÖTKARTÖFLURSALÖT

Auglýsing

.

Kalt kartöflusalat með ólífum, fetaosti og beikoni

1 kg kartöflur

Í salatið:

Góð ólífuolía, eftir smekk
10–12 grænar ólífur (t.d. fylltar með papriku)
10–12 svartar ólífur
1 rauðlaukur, skorinn í þunna strimla
Sólþurrkaðir tómatar, skornir í strimla
Fetaostur, eftir smekk
Smá olía af fetaostinum
Steikt beikonkurl
Ferskt dill

Sjóðið kartöflurnar í söltu vatni þar til þær eru mjúkar. Hellið vatninu af og kælið.
Flysjið kartöflurnar og skerið þær gróflega og setjið í stóra skál.
Bætið ólífuolíu saman við ásamt ólífum, rauðlauk, sólþurrkuðum tómötum, fetaosti og smá af olíunni af fetaostinum.
Setjið beikonkurl og ferskt dill út í.
Blandið öllu varlega saman með sleikju.

Þetta salat passar einstaklega vel með grilluðu kjöti, fiski eða sem hluti af tapas- eða sumarborði.

Fleira áhugavert:

— Ítölsk sítrónukaka —  Dúllað svepparisottó hjá Hildigunni EinarsDaglegt lyftiduftsbrauð —  Humarveisla Önnu RósuFrómas, bestu uppskriftirnarRabarbarasultaMatur og gigtareinkenni —  Steikt blómkálBláber eru holl, mjög holl — 

Fyrri færslaHvernig fáum við hvítar skyrtur til að vera hvítar?
Næsta færslaPylsuvagninn Akureyri