Laugarás lagoon og Ylja veitingastaður

Nýtt baðlón á Suðurlandi með einstaka hönnun, frábærri slökun og eftirminnilegri matarupplifun á veitingastaðnum Ylju.

0
Auglýsing
Laugarás Lagoon og Ylja eru frábær tvenna. Fyrst nutum við rólegrar stundar í hlýju lóninu og síðan frábærrar máltíðar – upplifun sem við mælum heilshugar með.

Laugarás lagoon og Ylja veitingastaður

Ef ykkur langar að gera sérlega vel við ykkur án þess að það kosti hálfan handlegginn, er málið að skreppa austur í Laugarás Lagoon með málsverði á Ylju á eftir.

Í Laugarás Lagoon er Ylja, dásamlegur veitingastaður. Þar ræður ríkjum Gísli Matthías sem var með Slippinn í Vestmannaeyjum. Ef þið komuð þangað, þá vitið þið hvað ég er að tala um, hugmyndaauðgin, hráefni úr nærumhverfi, frumlegheitin og bragðsinfóníur sem koma á óvart eru beinlínis heilandi. Þetta er Gísli Matthías. Já, Ylja er eins og að vera lentur á Michelin stað, þeir eiga bara eftir að koma.

Auglýsing

Gísli Matthías  –  Veitingastaðir  – Ísland  –  Michelin  –  Íslenskt  –  Vestmannaeyjar  –

Bergþór, Gísli Matt og Albert. Þegar við heimsóttum Gísla á Slippinn í Eyjum var samskonar mynd tekin – SJÁ HÉR.
Skógarseyði og súrdeigsbrauðstangir

Gísli útbjó fimm rétta matseðil, kom þó fyrst með tvíbakað dagsgamalt súrdeigsbrauð sem var mótað í litlar greinar og með því seyði úr skóginum úr þurrkuðum villisveppum, grenitoppum og birkilaufum, algjör „hvaðeraðgerast“ áhrif.

Orri, þjónninn okkar kom með þrjá ljúffenga, óáfenga kokteila, gimlet með blóðbergi og skessujurt, allt tínt kringum lónið, einnig hvannarkokteil, hvönn með sítrónu, sykri og óáfengu freyðivíni og síðast hafraseyði og gerjuð græn epli.
Tómata-carpaccio
Vestmannaeyjalaxinn með undurgóðri grænni sósu. Það er sko hægt að drekka hana.
Kúrbíts-spaghetti

Forréttirnir

Við fengum þrjá forrétti, „tómata-carpaccio“ með ferskosti, jurtaolíu og jurtum, m.a. basil frá Ártanga. Lax frá Vestmannaeyjum með grænmeti og sósu úr aguachile en ekki með sítrusávöxtum, heldur er hér mysa soðin niður í sama sýrustig og sítrus, jurtir og smáedik gefa henni svo punktinn yfir i-ið. Kúrbíts-spaghetti með kúrbít frá Heiðmörk í Laugarási, græn jarðarber, chili, hvílíkt ferskt. Þessir réttir voru listaverk að sjá og bragða á.

Þorskur í bréfi
Lamba-ribeye

Aðalréttirnir

Svo kom þorskur í bréfi, inni í umslaginu var kryddsmjör og X.O. sósa. Það er upphaflega kínversk marinering (engifer, þurrkaðar rækjur og þurrkað kjöt), en í staðinn er hér notað flus af rófum sem er grillað og eldað í langan tíma. Fiskurinn er grafinn í þarasalti, stappaðar kartöflur með stökkum jarðskokkum og reykt hollandaise sósa.

Kemur Gísli nú ekki bara með lamba-ribeye, grillað með seljurót og rabarbaramauki og pikkluðum rabarbara! með timian-olíu og möndlumauki. Sósa úr Feyki og alvöru soðsósu undir.

Hvítsúkkulaðimús, grenikaka og súkkulaðimús með blóðbergs-bláberjagranítu. Okkur lá við yfirliði.

Eftirréttirnir

Hvítsúkkulaðimús með basilgranitu (sikileyskur krapís) og jarðarberjum, súkkulaðimús (dísus) með blóðbergs-bláberjakrapi, sveppafroðu og sveppamarengs og grenikaka með þeyttum sýrðum rjóma og mysingskaramellu til hliðar.

Í lokin heyrðist á borðinu okkar: Ég er bara smá sorgmæddur að þetta sé búið!

Eyjólfur, Bergþór og Albert á Ylja veitingastaðnum á Laugarási lagoon. Færslan er unnin í samvinnu við Laugarás lagoon og Ylja.

Fegurðin ríkir hvarvetna í Laugarás lagoon, slakandi og heilandi. Öll hönnun utandyra á staðnum sem og innandyra er hlý, mjúk og jarðtengd – litirnir, efnin, formin eru þannig að maður fer í annan heim af vellíðan. Staðsetningin er fullkomin og eins og staðurinn hafi alltaf verið þarna með risavöxnum trjám umhverfis. Ekki nóg með það, Laugarás er kominn með fallega snyrtilínu, handsápu, sjampó og hárnæringu og meira á leiðinni. Ilmurinn er úr íslenskri náttúru, eins og að leggjast í mosann.

Já, það er sannarlega vel þess virði að skreppa austur í Laugarás og á ótrúlega góðu verði miðað við annað sambærilegt sem er í boði.

Fyrri færslaÞríhnjúkagígur – ferð inn í hjarta eldfjalls
Næsta færslaSumarlegt salat með jarðarberjum og fetaosti