Frönsk möndlukaka – ekta frönsk ömmu-möndlukaka, mjög klassísk
Frönsk möndlukaka Heba Eir kom með tertu í vinnuna sem hún bakaði eftir uppskrift franskrar ömmu sinnar – franskar ömmur kunna þetta. Ætli megi ekki segja að þetta sé ekta frönsk ömmu-möndlukaka – mjög klassísk “gateau de mamie” eins og sítrónu/jógúrtkaka og sandkökur. Hún er oft borðuð á jólum, þessi möndlukaka en hæfir þó við öll tilefni. Kakan er virkilega einföld og gómsæt fyrir utan hvað þetta er glæsileg kaka! Við emjuðum svo góð var möndlukakan franska :)
Afritaðu og límdu þessa vefslóð í WordPress vefinn þinn til þess að fella inn
Afritaðu og límdu þennan kóða yfir í vefinn þinn til þess að fella inn