Frönsk möndlukaka – ekta frönsk ömmu-möndlukaka, mjög klassísk

Fronsk mondlukaka

Frönsk möndlukaka Heba Eir kom með tertu í vinnuna sem hún bakaði eftir uppskrift franskrar ömmu sinnar – franskar ömmur kunna þetta. Ætli megi ekki segja að þetta sé ekta frönsk ömmu-möndlukaka – mjög klassísk “gateau de mamie” eins og sítrónu/jógúrtkaka og sandkökur. Hún er oft borðuð á jólum, þessi möndlukaka en hæfir þó við öll tilefni. Kakan er virkilega einföld og gómsæt fyrir utan hvað þetta er glæsileg kaka! Við emjuðum svo góð var möndlukakan franska :)