Súkkulaðihúðaðar jólasmákökur með pekanhnetum

Súkkulaðihúðaðar smákökur

Súkkulaðihúðaðar jólasmákökur með pekanhnetum – Hugrún Britta Kjartansdóttir lenti í 3.sætið í smákökusamkeppni Kornax 2016. Hún er vel að þriðja sætinu komin og það fyrsta sem kom upp í minn huga þegar ég smakkaði þær var í fyrsta lagi: Mig langar í kaffi með þeim og í öðru lagi: Mig langar í fleiri…. :) Hjá öðrum dómnefndarmönnum mátti heyra: „Sparikaka og maður nýtur hvers bita fyrir sig” – Jólaömmukaka með gamaldags ívafi” og „Það eru notalegheit sem fylgir henni”