Franskt gulrótasalat – bragðgott, hollt og fallegt

Gulrótasalat – Salade de carottes râpées. Enn eru hér áhrif frá ferð okkar til Frakklands. Í einni af mörgum veislum var hlaðborð, þar var þetta guðdómlega gulrótasalat. Á meðan prúðbúnir gestir hlustuðu á allt of langar ræður laumaðist ég að borðinu tók myndir og smakkaði laumulega.