Auglýsing
Hnífur og gaffall hnífapör haldið á hnífapörum Hvernig á að halda á þeim? Borðsiðir mannasiðir kurteisi etiquette Hnífapör haldið á halda fallega hnífapörum
Haldið fallega á hnífapörum

Hnífur og gaffall

Það er ánægjulegt að sjá fólk sem heldur fallega á hnífapörunum, gaffallinn í vinstri hendi og hnífurinn í þeirri hægri – hvoru tveggja inni í lófanum. Ágætt að hafa í huga að þetta eru ekki vopn – munum það. Best þykir að hafa vísifingur ofan á þeim báðum sem gefur meiri stjórn á því sem er verið að gera. Munum að setja hnífapörin ekki aftur á borðið eftir að við erum byrjuð að borða. Við borðum ávallt með bæði hníf og gaffli en skerum ekki matinn fyrst í bita til að borða eingöngu með gafflinum. Á meðan á máltíð stendur eiga gaffalteinarnir að snúa niður.

Vörumst að vera með hnífapörin í höndunum ef við notum hendurnar til að leggja áherslu á orð okkar. Það er óþægilegt að sjá fólk sveifla hnífnum eins og skylmingakappi.

Auglýsing

🍴

BORÐSIÐIRHNÍFAPÖR

🍴

Hnífapör gaffall og hnífur saman í lok máltíðar
Við leggjum hníf og gaffal saman eftir að búið er að borða. Ef diskurinn er klukka vísa sköftin t.d. á rúmlega kl. 4. Ef maki ykkar, börn eða aðrir nákomnir draga gaffalinn eftir tönnunum þarf að benda fólki á það (samt ekki í matarboðinu), það getur farið fínustu taugar fólks að heyra bitið í gaffalinn. Svo stingum við aldrei hníf upp í okkur – aldrei.

Hnífapör

🍴

BORÐSIÐIRHNÍFAPÖR

🍴

1 athugasemd

  1. Ekki í Bandaríkjunum , þeirra síður er halda á gafli með lokuðum Hnefa í vinstri hönd setja hníf í hægri hönd skera alt nýður í bita á disknum síðan setja hníf til hliðar grípa gaffal með lokuðu hnefa og moka öllu ynn LOL

Comments are closed.