Bessastaðakökur

Bessastaðakökur frá Vigdísi – klassískar íslenskar smákökur með sultu og möndlum

4
Auglýsing
Bessastaðakökur, smjörkökur skírt smjör hvernig á að skíra smjör hvað er að skíra smjör Arnar Kormákur, Bessastaðir, Vigdís Finnbogadóttir, jakóbína Thomsen, Grímur Thomsen, smjörkökur forsetinn forsetasetrið sauðlauksdalur
Bessastaðakökur

Bessastaðakökur

Bessastaðakökur eru klassískar íslenskar smákökur með sögulega tengingu við Bessastaði og Vigdís Finnbogadóttir. Þessi uppskrift fylgdi henni þegar hún flutti á Bessastaði og kökurnar voru bakaðar þar um árabil.

Þetta eru einfaldar og einstaklega góðar smjörkökur, stökkar að utan en mjúkar að innan, oft toppaðar með sultu og möndlum. Fullkomnar með kaffibolla – hvort sem er á aðventunni eða allt árið.

Auglýsing

„Föðursystur mínar, aldar upp á prestssetrinu í Sauðlauksdal upp úr fyrri aldamótum, -(en þar bauð prestsmaddaman hún amma mín sóknardætrum oft að koma að læra hannyrðir og matargerð), bökuðu alltaf þessar kökur fyrir jólin og gáfu okkur í fjölskyldunni í fallegum kössum fyrir hátíð. Þær sendu meira að segja box til æskuvinkonu minnar í Ameríku, þegar hún dvaldi þar um jól. En Bessastaðakökur voru þær kallaðar af því að þær voru sagðar ættaðar frá Jakobínu Thomsen, konu Gríms Thomsens þegar hann bjó á Bessastöðum á síðari hluta 19. aldar. Svo það er skáldakeimur af þessum mögnuðu smákökum.

– Bessastaðir – Vigdís Finnbogadóttir – Smákökur – Sauðlauksdalur – Skírt  smjör – Forseti – Jólauppskriftir – Vinsælustu smákökuuppskriftirnar –

🇮🇸

Vigdis Finnbogadóttir, Albert Eiriksson, Bergþór Pálsson
Bergþór, Vigdís og Albert

„Ég tók með mér þessa uppskrift þegar ég flutti til Bessastaða og þær voru alla mína tíð bakaðar þar – reyndar allan ársins hring – og bornar fram í silfurskál (eins og konfekt) með kaffi (og aðeins þær sem bakkelsi) öllum þeim sem komu í stutt viðtöl eða með einhver erindi, – það var alltaf öllum boðið kaffi að gömlum sveitasið.“ segir Vigdís forseti.

Bessastaðakökur

250 g hveiti

250 g smjör

125 g sykur

125 g flórsykur

grófur sykur

gróft malaðar möndlur (hnetur)

Hrærið smjör og sykur saman þar til létt og ljóst.
Bætið flórsykri og hveiti út í og hnoðið saman í deig.
Rúllið í lengjur og kælið í ísskáp í 30–60 mínútur.
Skerið í sneiðar og raðið á bökunarplötu.
Setjið sultu og möndlur ofan á.
Bakið við 180°C í 10–12 mínútur.

Best er að baka kökurnar úr köldu deigi – þá halda þær lögun betur.

Þessar kökur eru klassík sem aldrei fer úr tísku – einfaldar, fallegar og alltaf jafn góðar með ilmandi kaffi.

🇮🇸

Smellið á til að sjá meira:

– Bessastaðir – Vigdís Finnbogadóttir – Smákökur – Sauðlauksdalur – Skírt  smjör – Forseti – Jólauppskriftir – Vinsælustu smákökuuppskriftirnar –

Fyrri færslaRistaðar kanilmöndlur
Næsta færslaRistaðar möndlur með sítrónu og rósmaríni

4 athugasemdir

  1. Þetta minnir mig á Gyðingakökurnar sem mamma bakaði alltaf fyrir jólin,- mun skemmtilegra nafn þó 😉

  2. Bessastaðakökur eru hafðar mun þykkari en Gyðingakökur og miklu minni að þvermáli. Þær eru bakaðar mjög lítið og hafðar frekar ljósar. Það heitir að skíra smjör að bræða það og láta það storkna og skafa “syrjuna” undan, ég bara veit ekki hvort það þarf að gera þetta núna en ég held að sveitasmjörið í gamla daga hafi verið þannig að þess hafi þurft.
    Bakarameistarinn (í Suðurveri) hefur alltaf bakað Bessastaðakökur og selt fyrir jólin,

Comments are closed.