![Kurteisi snýst um að taka tillit til annarra Að taka tillit til annarra - Kurteisi Rannveig Schmidt Borðsiðir mannasiðir Etiquette](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2016/06/Kurteisi.ashx_.jpeg?resize=204%2C300&ssl=1)
Að taka tillit til annarra – Kurteisi eftir Rannveigu Schmidt
Kurteisin breytist með tímanum en hin almenna regla ekki; að taka tillit til annarra. Það er kjarni málsins, hversu hlægilega sem gamlir mannasiðir kunna að hljóma.
Árið 1945 kom út bókin Kurteisi eftir Rannveigu Schmidt. Í henni er fjallað um fjölbreytilegt efni eins og borðsiði, yndisþokka, gláp, gort og bréfaskriftir: „á Norðurlöndum taka karlmenn djúpt ofan hattinn fyrir konum og lyfta hattinum fyrir öðrum karlmönnum… Vel uppalinn maður blístrar ekki eða kallar á konu á götunni. Kona snýr sér ekki við ef hún heyrir einhvern blístra.” Rannveig mælir með að „þegar kona mætir karlmanni á almannafæri, á hún að heilsa fyrst … það er hún, sem á að sýna, hvort hún vill heilsa eða ekki.
— KURTEISI — RANNVEIG SCHMIDT — GÖMUL RÁÐ —
![Rannveig Þorvarðardóttir Schmidt Kurteisi](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2016/06/Rannveig-Þorvarðardóttir-Schmidt.png?resize=199%2C243&ssl=1)
.
— KURTEISI SNÝST UM AÐ TAKA TILLIT TIL ANNARRA —
.