Auglýsing
Pallíettuísterta, hindber, rjómaterta, saumaklúbbur, Fáskrúðsfjörður, Franskir dagar, blað franskra daga
Pallíettuísterta með hindberjum

Pallíettuísterta með hindberjum. Ó hvað er gaman að borða tertur, í hófi samt 🙂 Þetta er nú engin hollustuterta en engu að síður góð

Pallíettuísterta með hindberjum

Botn

4 eggjahvítur

200 g sykur

200 g kóksmjöl

250 g rjómasúkkulaði

Þeytið eggjahvítur og sykur, bætið hinu við og bakið í springformi í 30 mín. við 150°C.

Vanilluís

4 eggjarauður

4 msk. sykur

2 tsk. vanilludropar

1/2 l rjómi

150 g hindber

Þeytið eggjarauður og sykur bætið dropum í. Þeytið rjómann og blandið honum og berjunum við eggjahræruna og setjið þetta ofan á kókosbotninn þegar hann er orðinnkaldur. Setjið svo í frysti.

Þegar kakan er orðin frosin er kremi smurt á hana.

Krem

2 Snikkers

50 g rjómasúkkulaði

1 msk. smjör

2 msk. rjómi

Bræðið saman og látið kólna. Smyrjið kreminu yfir. Setjið aftur í frost og kakan er svo
borin fram hálf frosin, það má svo skreyta hana með þeyttum rjóma og berjum að vild.

SJÁ EINNIG: FÁSKRÚÐSFJÖRÐURSAUMAKLÚBBUR

Auglýsing