Bráðskemmtilegt matarboð í Brussel

LYNGHÆNA lynghænur Bráðskemmtilegt matarboð í Brussel Helga Jónsdóttir, Signý Sæmundsdóttir, Þórunn Björnsdóttir, Sólveig Helgadóttir, Bóas Hallgrímsson, Svanhvít Valgeirsdóttir og Peter Rittweger. brussel matarboð belgía
Albert, Helga, Signý, Bóas, Sólveig, Peter, Þórunn og Bergþór. Svanhvít tók myndina

Bráðskemmtilegt matarboð í Brussel

Það var vor í lofti í Brussel um páskana, gróðurinn farinn að lifna við, fuglarnir í óða önn að undirbúa hreiðrin með tilheyrandi kórsöng og brúnin létt á mannfólkinu mót hækkandi sól.
Brussel er fræg matarborg og þar kennir áhrifa víðs vegar að úr heiminum. Flestir tengja krækling og franskar kartöflur, sem reyndar eru upphaflega belgískar, við Brussel ásamt vöfflunum víðfrægu sem hægt er að fá á hverju götuhorni og næstum því óbærilega gott súkkulaði. Fjölmargt fleira gott er í boði og segja má að gleðjandi matarilminn leggi langt út fyrir miðborgina – hvert sem haldið er.

#2017Gestabloggari18/52BELGÍABRUSSEL — LYNGHÆNURÞÓRUNN BJÖRNSHELGA JÓNSDVEISLUR

.

þórunn björsdóttir Albert Eiríksson
Þórunn og Albert

Þórunn Björnsdóttir kórstjóri hefur verið með annan fótinn í Brussel í síðastliðin ár og unir þar hag sínum vel. Þórunn og eiginmaður hennar Marteinn heitinn Hunger Friðriksson, dómorganisti, komu við sögu á Gestgjafaárum mínum, þegar Dómkórinn hélt stórglæsilegt páskadagsmorgunhlaðborð. Þórunn hefur stjórnað hinum rómaða Skólakór Kársness í fjóra áratugi og víst er að börnin eru orðin óteljandi, stór og smá, sem elska hana Þórunni fyrir natnina, kraftinn, hlýjuna og óbilandi trú á unga fólkið í samneyti við tónlistargyðjuna.

En nýr kafli tekur við af öðrum í lífsins bók. Þórunn hefur nú lokið meistaranámi í menningarstjórnun, sem hún tók að mestu í fjarnámi frá Brussel. Hún var beðin að stjórna Kór Íslendinga og hefur þannig kynnst frábæru fólki í Belgíu. Æfingar kórsins fara fram þegar tækifæri gefast í betri stofunni hjá þeim Helgu Jónsdóttur. Helga er líka kjarnorkukona, hefur komið víða við í stjórnunarstöðum, t.d. sem ráðuneytisstjóri, borgarritari í Reykjavík og bæjarstjóri Fjarðabyggðar, en er nú stjórnarmaður í Eftirlitsstofnun EFTA, „ESA“.

Það fer ekki á milli mála að við erum að heimsækja höfðingja, glaðværð og glæsileiki haldast í hendur hjá þeim Þórunni og Helgu.

#2017Gestabloggari18/52BELGÍABRUSSEL — LYNGHÆNURÞÓRUNN BJÖRNSHELGA JÓNSDVEISLUR

.

kavíarbollur
Signý, Þórunn, Sólveig, Bóas, Svanhvít og Peter
Helga, Signý, Þórunn, Sólveig, Bóas, Svanhvít og Bergþór

 

Í hlýrri kvöldgolunni buðu þær Þórunn og Helga gesti velkomna með freyðivíni og lystaukandi „kavíarbollum“ á þaksvölunum. Þaðan er fagurt útsýni yfir borgina. Helga Jónsdóttir, Signý Sæmundsdóttir, Þórunn Björnsdóttir, Sólveig Helgadóttir, Bóas Hallgrímsson, Svanhvít Valgeirsdóttir og Peter Rittweger.

 

Bóas með tígrisrækjur

Tengdasonur Helgu, Bóas Hallgrímsson, Austfirðingur með meiru, sá um forréttinn, steiktar risarækjur. Þær voru bragðmiklar, hárrétt eldaðar og slógu góðan tón fyrir það sem á eftir kom.

Tígrisrækjur

Engifer, hálfur þumall.
Rauður chillí – tveir meðalstórir, ekki hreinsa fræin frá.
Hvítlaukur – tvö meðalstór rif
Þurrt hvítvín – 3 dl
Kóreander – eftir smekk, ég kýs að hafa meira en minna
Skarlottulaukur – 2-3
Safi úr 1 smárri sítrónu og einu lime
Pistasíur

Mýkið hvítlauk, engifer og chilli á pönnu með ósöltuðu smjöri. Hellið hvítvíni, sítrónusafa og lime á pönnuna og sjóðið upp. Gott er að leyfa því að njóta sín í talsverðan tíma á meðan soðið tekur sig og áfengið gufar upp. Hellið safanum frá og steikið rækjurnar á pönnu, ef tími gefst til þá má sáldra yfir þær svörtum pipar. Rækjurnar þurfa skamma stund á pönnunni, en steikingartíminn fer eftir stærð, en viðmiðið er að þær verði fallega bleikar og þéttar í sér. Setjið rækjunum á fat og hellið soðinu yfir. Í lokin er pistasíuhnetum og kóríander dreift yfir réttinn. Ekki er slæmt að bera fram með hvítu brauði og þurru vönduðu hvítvíni. .
Taki soðið upp á því að verða fullsúrt þá má gjarnan bæta í það skvettu af hreinum eplasafa eða einni teskeið af góðu hunangi.

 

Lynghænur vafðar í parmaskinku

Lynghænur vafðar í parmaskinku
Lynghænur vafðar í parmaskinku

 

Lynghænur vafðar í parmaskinku

Lynghænur vafðar í parmaskinku voru hreinasta lostæti, mjúkar undir tönn og bragðmiklar. Það á kannski við hér eins og með rjúpur á jólum að sósan skiptir höfuðmáli. Þórunn eldaði lynghænur í fyrsta sinn s.l. jóladag og fullyrðir að söknuðurinn eftir rjúpunum hafi horfið við fyrsta bita. Þær Þórunn og Helga tína mikið af sveppum á Íslandi á sumrin og þurrka. Villisveppabragðið passaði vel með lynghænunum ásamt salatinu og kartöflu/grænmetismúsinni áferðargóðu.

 

Lynghænur vafðar í parmaskinku 

4 fuglar þerraðir og snyrtir

Penslaðir með olíu og kryddaðir með salti og pipar.

Fylling:
Leggið tvær fransbrauðsneiðar í bleyti í mjólkurdreitil og blandið saman við 100g af söxuðum sveppum, 30g af smjöri, 1/2 smátt skornum lauk, smá steinselju og sítrónusafa.
Skiptið fyllingunni milli fuglanna og vefjið þá inn í þunna parmaskinku og leggið í eldfast fat. Ekki verra að setja grein af tímian undir parmaskinkuna .
Setjið fuglana inn í 180°heitan ofn í 35 mínútur og notið soðið í sósuna.

 

Lynghænusósa

Lynghænusósa

Væn lúka af þurrkuðum villisveppum

1/2 gulrót, smátt söxuð

lítill selleríibiti, saxaður smátt

1 skarlottulaukur, smátt skorinn

smjör

salt og pipar

2 dl vatn

kjúklingateningur

2 dl af rjóma

Setjið sveppi gulrót, sellerí og lauk í pott og mýkið í smjörinu. Saltið smá og piprið. Bætið við vatni, kjúklingteningi og látið malla í nokkrar mínútur. Þá er hellt saman við rjóma (má vera meira) og í lokin soðinu af fuglunum.

 

sparisalat þórunnar
Sparisalat Þórunnar

Sparisalat Þórunnar. 

Grískri jógúrt blandað saman við rjómalögg ásamt 2 msk af Grand Marnier og smá appelsínusafa.
Hellt yfir niðursneiddar perur, vínber og epli og látið standa klukkustund. Granateplum sáldrað yfir í lokin.

 

Kartöflumús með Ritzkexkökum
Kartöflumús með Ritzkexkökum

Kartöflumús með Ritzkexkökum

500 g soðnar kartöflur

200 g soðnar gulrætur

100 g af söltuðu smjöri

múskat, salt og pipar

2 egg

10 Ritzkexkökur

steinselja.

Stappið saman kartöflum, gulrótum og smjöri, bragðbætið með smá múskati, salti og pipar. Bætið við eggjum og að lokum Ritz kexinu og steinseljunni. Setjið í eldfast fat og stingi inn í heitan ofn í nokkrar mínútur.

 

Helga sá um eftirréttinn sem voru ferskustu berin sem hún fékk af markaðnum borin fram með mascarponerjóma. Gómsætur eftirréttur með sprúðlandi góðum ávöxtum

Mascarponerjómi með berjum
Mascarponerjómi með berjum

 

Mascarponerjómi með berjum

1 dl grísk jógúrt

2 msk sykur

1/2 tsk vanilludropar

200 ml rjómi

250 ml mascarponeostur

Hrærið vel saman mascarponeosti, jógúrt, sykri og vanilludropum og blandið að lokum varlega saman við léttþeyttan rjómann.

 

#2017Gestabloggari18/52BELGÍABRUSSEL — LYNGHÆNURÞÓRUNN BJÖRNSHELGA JÓNSDVEISLUR

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.