![Gúddý og Krissi bjóða til stórveislu Gúddý og Krissi bjóða til stórveislu Dressing á salat Krissi, Carola, Jón, Gúddý, Guðrún Hulda birgis Kristján þór gunnarsson](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2017/07/P1018469.jpg?resize=696%2C522&ssl=1)
Gúddý og Krissi bjóða til stórveislu. Heiðurshjónin Kristján og Guðrún Hulda, betur þekkt meðal vina sinna sem Krissi og Gúddý, héldu ægifína veislu á dögunum. Hún sá um forréttinn og eftirréttinn og hann sá um að grilla. Þau hjónin voru í Toskana á Ítalíu á síðasta ári og fóru í eftirminnilega vínsmökkunarferð, þar kipptu þau með sér borðvíninu sem drukkið var með herlegheitunum.
#2017Gestabloggari27/52 — LAMBAKJÖT — MARENGS —
![Sumarlegur drykkur](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2017/07/P1018374.jpg?resize=696%2C928&ssl=1)
Sumarlegur fordrykkur
1 hluti Pecahtree (ferskjulíkjör)
1 hluti vodka
1 hluti hreinn appelsínusafi
1 hluti Sprite zero
Allt hrist saman í glas og fyllt upp með klaka, sítrónu og appelsínusneiðum.
![](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2017/07/P1018387.jpg?resize=696%2C522&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.alberteldar.com/wp-content/uploads/2017/07/P1018391-768x1024.jpg?resize=370%2C489)
Rækjuspjót frá fiskbúðinni Hafinu
Steikt á pönnu upp úr miklum hvítlauk og smjöri, í um það bil 3-4 mín á hvorri hlið.
Borið fram með ristuðu brauði, sítrónubát og chillimajónesi frá Hafinu.
![](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2017/07/P1018398.jpg?resize=696%2C928&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2017/07/P1018400.jpg?resize=696%2C928&ssl=1)
Grillaðar lambalundir
Lambalundir kryddaðar með lamba-villikryddi frá Kjöthöllinni og olífuolíu, látið liggja í þessu í 4.tíma. Grillað á útigrilli í 5-7 mín á hvorri hlið, gott að láta kjötið standa í 5 mín á eftir.
![Sumarlegt salat](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2017/07/P1018429.jpg?resize=696%2C928&ssl=1)
Sumarsalat
1 poki klettasalat
1 poki blandað salat
kirsuberjatómatar
agúrka
gul paprika
jarðaber
ristuð fræ (salatblanda)
Öllu blandað saman og fetaostur í olíu settur yfir í lokin.
Dressing á salat
1 hluti olífuolía
1 hluti sítrónuolía
Smáskvetta af sesamolíu
Dijon sinnep
Safi úr hálfri sítrónu
Allt hrist vel saman og borið fram með salatinu.
![Rósmarín kartöflur](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2017/07/P1018441.jpg?resize=696%2C928&ssl=1)
Rósmarín kartöflur
Forsoðnum kartöflum (sigtið vatnið af þeim) er velt upp úr miklu smjöri á pönnu og kryddað með rósmarín.
![Hvítlaukssósa með kryddjurtum](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2017/07/P1018453.jpg?resize=696%2C928&ssl=1)
Hvítlaukssósa með kryddjurtum
3 hlutar sýrður rjómi
1 hluti majónes
½ hvítlaukur
Graslauki og tímian úr garðinum, ásamt salti, piparog kóriander blandað við, og allt hrært vel saman og látið standa í a.m.k 5 klst.
![Berjamarens](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2017/07/P1018526.jpg?resize=696%2C928&ssl=1)
Berjamarens
4 eggjahvítur og 2 bollar púðursykur, hrært mjög vel saman.
Mótið litla botna á bökunarplötu, úr þessu koma u.þ.b 12 stk. og bakið í 25 mín. við 170°C – slökkvið þá á ofninum og látið marengsinn kólna í ofninum.
Á hvern marens fer saltkarmellusósa frá Kjörís í botninn þeyttur rjómi þar ofan á. Og svo fullt af berjum, jarðarber, hindber, bláber og brómber sett ofan á rjómann. Í lokin er skreytt með karmellukurli, saltkarmellusósunni og örfáum þunnt skornum Lion bar súkkulaðisneiðum.
![](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2017/07/P1018473.jpg?resize=696%2C522&ssl=1)
![Gúddý og Krissi bjóða til stórveislu Gúddý og Krissi bjóða til stórveislu](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2017/07/Gúddý-og-Krissi.png?resize=696%2C421&ssl=1)
.
— STÓRVEISLA GÚDDÝAR OG KRISSA —
.