![Sunnudagssíðdegiskaffi hjá Ragnheiði Lilju sunnudagskaffiboð, Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir, Páll Bergþórsson, Sunnudagssíðdegiskaffi hjá Ragnheiði Lilju Fljótstunguættin](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2017/07/Ragnheiður-Lilja-Bjarnadóttir.png?resize=696%2C405&ssl=1)
Súkkulaðibomba með kókosklæðningu
Það er eitthvað svo ljúft að fá boð í kaffiboð á sunnudagssíðdegi. Á sólríkum sunnudegi á Akureyri bauð Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir okkur í kaffi og með því. Hún tók vel í að vera gestabloggari og sendi uppskriftirnar um hæl. Eða satt best að segja þá buðum við okkur í kaffi, Ragnheiður Lilja bakar nefnilega mjög góðar kökur. Á ferðalagi okkar um Norðurland höfðum við samband og úr varð kaffiboðið 🙂 „Súkkulaðibomban er ekki fyrir fólk sem er í sykurbindindi” segir Ragnheiður Lilja.
Viltu segja eitthvað að lokum? Tja, ekki annað en að ég ætlað að bjóða ykkur uppá hráfæðisköku (sem eru uppáhaldið mitt), en þú ert svo öflugur í hollustunni að allt sem mér datt í hug er nú þegar á alberteldar.com 🙂
#2017Gestabloggari 28/52 — RAGNHEIÐUR LILJA — AKUREYRI –
.
![Súkkulaðibomba með kókosklæðningu Súkkulaðibomba með kókosklæðningu](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2017/07/P1018929.jpg?resize=696%2C522&ssl=1)
Súkkulaðibomba með kókosklæðningu
Súkkulaðibotn
4 egg
300 gr sykur
200 gr bráðið smjör
75 gr kakó
40 gr vanillusykur
1/2 tsk salt
180 gr hveiti
Kókosklæðning
200 gr kókos
180 gr sykur
75 gr síróp
150 gr rjómi
100 gr smjör
Hitið ofninn í 200°C og undirbúið formið. Gott er að setja smjörpappír í botninn á smelluformi og smella utanum um pappírinn.
Þeytið saman egg og sykur þar til það er létt og ljóst. Bætið kakó, vanillusykri og salti út í og hrærið. Bætið að lokum hveiti og bráðnu smjöri við blönduna og blandið vel saman.
Bakið kökuna í 15 mínútur við 200°, takið hana þá út og leyfið henni að kólna örlítið áður en kókosklæðningin er sett ofaná og kakan aftur inn í ofn.
Á meðan kakan er í ofninum eru öll hráefnin í kókosklæðningunni sett á kalda pönnu og svo kveikt undir. Hrærið í meðan allt bráðnar saman. Látið krauma í 5 mínútur, gott að hræra allan tímann.
Þegar kakan hefur kólnað svolítið er kókosblandan sett varlega ofaná kökuna, lítið í einu þar til búið er að þekja alla kökuna. Þá er hún sett aftur í ofninn í 10 mínútur, eða þar til kókosklæðningin er fallega ljósbrún.
Kökuna er tilvalið að frysta og þá er auðvelt að skera bita og bita ef maður vill næla sér í eitthvað sætt með kaffinu.
![Ferskur og fínn eftirréttur Ferskur og fínn eftirréttur lu kex skyr vanilla jarðarber](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2017/07/P1018940.jpg?resize=696%2C522&ssl=1)
Ferskur og fínn eftirréttur
1 pk LU kex
100 gr bráðið smjör
350 gr grísk jógúrt
350 gr vanilluskyr
hindber og jarðaber
Myljið kexið í botninn (best að nota matvinnsluvél), blandið bráðnu smjörinu við og þjappið í botninn á fallegu formi. Hrærið saman grískri jógúrt og vanilluskyri og setjið blönduna ofan á kexið. Skreytið með berjum ☺ Einfalt, ferskt og ofsa gott.
![Ragnheiður Lilja með ömmubróður sínum Páli Bergþórssyni Ragnheiður Lilja með ömmubróður sínum Páli Bergþórssyni](https://i0.wp.com/www.alberteldar.com/wp-content/uploads/2017/07/P1018951-868x1024.jpg?resize=422%2C496)
![Helga, mamma hennar Una Björg og Páll Helga, mamma hennar Una Björg og Páll](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2017/07/P1018953.jpg?resize=696%2C599&ssl=1)
.
#2017Gestabloggari 28/52 — RAGNHEIÐUR LILJA — AKUREYRI –
.