
Matmálstímar séra Ólafs Indriðasonar á Kolfreyjustað
Kolfreyjustaður í Fáskrúðsfirði er einn af þeim stöðum sem eiga sérstakan stað í hjarta mínu. Þar fermdist ég í fallegu kirkjunni og var heimagangur á prestssetrinu á yngri árum. Sveitin er einstaklega fögur, yst í firðinum, og út um eldhúsgluggann blasir Skrúðurinn við, þessi tignarlega klettaeyja sem prýðir mynni Fáskrúðsfjarðar.
Á Kolfreyjustað bjó séra Ólafur Indriðason (1796–1861), prestur og faðir þjóðskáldanna Páls Ólafssonar og Jóns Ólafssonar. Í endurminningum Jóns má finna áhugaverðar lýsingar á daglegu lífi á prestssetrinu, meðal annars hvernig staðið var að matmálstímum og borðhaldi. Slíkar frásagnir eru dýrmæt heimild um borðsiði og heimilishald á íslensku prestssetri á 19. öld.

„Fyrir föður minn var ætíð dúkur breiddur inni í húsi hans og borið á borð að öllu eins og nú er siður. Þar borðaði móðir mín með honum stundum, en stundum borðaði hún í búrinu um leið og hún skammtaði. Ég borðaði ætíð með föður mínum, og eins Kristrún systir mín síðasta árið sem hann lifði. Oft var sama til matar hjá okkur eins og hinu fólkinu, þótt öðru vísi væri fram reitt, en stundum var þó meira í borið eða annar matur á borðinu hjá okkur.“
-Úr endurminningum ævintýramanns eftir Jón Ólafsson frá Kolfreyjustað.
— FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR – KOLFREYJUSTAÐUR – BORÐSIÐIR —
.

— FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR — KOLFREYJUSTAÐUR — BORÐSIÐIR —
🇮🇸

