Auglýsing
RAGNHEIÐUR LILJA BJARNADÓTTIR Hörgárdalur Þelamerkusskóli þelamörk Hollar nammikúlur Hluti af starfsfólki Þelamerkusskóla, nokkur voru önnum kafin. Aftari röð f.v.: Margrét Óladóttir, Hulda Arnsteinsdóttir, Berglind Vala Valdimarsdóttir kennaranemi, Óli Rúnar Ólafson, Anna Rósa Friðriksdóttir, Ragna Baldvinsdóttir, Sindri Snær Konráðsson og Sigríður Guðmundsdóttir. Fremri röð f.v. Kolbrún Eva Pálsdóttir, Anna Rós Finnsdóttir, Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir og Halla Björk Þorláksdóttir.
Hollar nammikúlur sem Ragnheiður Lilja skólastjóri kom með í föstudagskaffið í Þelamerkurskóla

 

Hollar nammikúlur
-Þessar þarf ekki að baka, bara stinga inn í ísskápinn- (sirka 20 stk):

2 dl möndlur
2 og 1/2 dl ferskar döðlur (eða 10 döðlur – mikilvægt að taka steininn úr! )
1 kúfull msk möndlusmjör
1 tsk hlynsíróp eða agave sýróp
2 tsk kakó
1/5 tsk salt

Hjúpur:
100g suðusúkkulaði
1/2 tsk kókosolía
Gróft salt

Aðferð:
Settu möndlurnar í matvinnsluvél.
Hakkaðu möndlurnar þar til þær eru orðnar að kurli.
Settu döðlurnar (án steina) í matvinnsluvélina og blandaðu.
Bættu kakó, salti, sýrópi og möndlusmjöri út í og maukaðu vel saman.

Búðu til litlar kúlur úr deiginu.
Settu kúlurnar á disk og geymdu í ísskáp í 30-60 mín.

Hjúpur:
Bræddu súkkulaðið og hrærðu kókosolíunni saman við í pottinum.
Veltu kúlunum upp úr súkkulaðinu og raðaðu þeim á disk.

Það er gott að setja bökunarpappír undir svo þær festist ekki við diskinn.
Stráðu grófa saltinu yfir súkkulaðið að lokum.
Geymdu kúlurnar í ísskáp í allavega 30 mínútur svo súkkulaðið nái að harðna vel.

— HÖRGÁRDALUR — AKUREYRI – FÖSTUDAGSKAFFIRAGNHEIÐUR LILJA

.

Nammikúlurnar voru hluti af góðgætinu hjá starfsfólki Þelamerkusskóla. Aftari röð f.v.: Margrét Óladóttir, Hulda Arnsteinsdóttir, Berglind Vala Valdimarsdóttir kennaranemi, Óli Rúnar Ólafson, Anna Rósa Friðriksdóttir, Ragna Baldvinsdóttir, Sindri Snær Konráðsson og Sigríður Guðmundsdóttir. Fremri röð f.v. Kolbrún Eva Pálsdóttir, Anna Rós Finnsdóttir, Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir og Halla Björk Þorláksdóttir.
Hollar nammikúlur

.

— HÖRGÁRDALUR — AKUREYRI – FÖSTUDAGSKAFFIRAGNHEIÐUR LILJA

HOLLAR NAMMIKÚLUR

.

Auglýsing