Palermo – matarborgin á Sikiley

Litir, ilmur og ómótstæðilegur götumatur í hjarta Sikileyjar

0
Auglýsing
Cuvee Du Jour – Villa Igea sikiley palermó MATARGANGA secret food tours emma palermo sicily Caponata er klassískur sikileyskur grænmetisréttur – uppistaðan er eggaldin, tómatar, laukur, selerí, ólífur, kapers og edik. Caponata er dæmi um rétt sem hefur þróast úr fátæktamat í veislurétt. Baccalá fritto/sfincione Cannoli Stigghiola Arancini – Djúpsteiktar hrísgrjónakúlur Salvo Albicocco kolkrabbi Scafazzato Spaghetti með rækjum, tómötum og pistasíum Jóhann Kristinsson Johann Kristinsson The Secret food. Emma Pasta alla Norma Trattoria Al Ferro di Cavallo Á Cuvee Du Jour – Villa Igea fengum við rækjur í forrétt, þá pasta með sikileyskum trufflum, blómkál í rjómasósu og loks grillaðan fisk trufflur Villa Malfitano Monte Pellegrino Santuario di Santa Rosalia Ástardrykkinn eftir Verdi í Óperuhúsinu í Palermó. Húsið, Teatro Massimo Ástardrykkurinn óperuhús palermó sikileyPalermo Palermó Palermo Sikiley Palermó Sikiley Sikileysk matarmenning Matur í Palermó Matarborgin Palermo Götumatur í Palermó Sikileyskur götumatur Besti maturinn í Palermo Hvar á að borða í Palermo Veitingastaðir í Palermó Kaffihús í Palermó Sögulegir markaðir í Palermo Matarupplifun á Sikiley Matarmenning Sikiley Sikileyingar og matur Arancini Arancina con carne Arancini al burro Pistasíu arancini Arancini Santa Lucia Santa Lucia Palermo matur Djúpsteiktar hrísgrjónakúlur Sikiley Cannoli Cannoli siciliani Sikileyskir eftirréttir Ricotta eftirréttur Cannoli með pistasíum Cannoli Palermo Stigghiola Stigghiola Palermo Sikileyskur innmatur Grillaður kindainnmatur Götumatur með sítrónu Sikiley Sfincione Baccalà fritto Saltfiskur á Sikiley Saltfiskréttir Palermo Osteria Lo Bianco Scafazzato Hefðbundnir sikileyskir réttir Caponata Caponata siciliana Eggaldinréttir Sikiley Grænmetisréttir Sikiley Sikileyskur fátækramatur Sikileysk matarhefð Pasta alla Norma Pasta með eggaldini Ricotta salata Sikileyskt pasta Polpo Kolkrabbi Sikiley Grillaður kolkrabbi Polpo alla griglia Polpo alla Luciana Pasta með kolkrabba Miðjarðarhafsmatur Sikiley Spaghetti með rækjum Pasta með pistasíum Sikileyskt pasta með sjávarfangi Trattoria Al Ferro di Cavallo Hráir staðir Palermo Einfaldir veitingastaðir Sikiley Ósvikin matarmenning Palermo Cuvee Du Jour Villa Igea Fínni veitingastaðir í Palermo Rækjur í forrétt Sikileyskar trufflur Grillaður fiskur Sikiley Salvo Albicocco Bestu bakarí í Palermo Sikileyskt sætabrauð Crostata di marmellata Beiskar appelsínur Sikileyskar kökur Ítalskir eftirréttir Villa Malfitano Söguleg hús í Palermo Menning og arkitektúr Palermo Monte Pellegrino Útsýni yfir Palermo Santuario di Santa Rosalia Helgir staðir í Palermo Gönguleiðir Palermo Teatro Massimo Óperuhús Palermo Opera á Sikiley Menningarlíf Palermo The Godfather Part III Palermo Ópera Cavalleria Rusticana Matarganga Palermo Secret food tour Palermo Food tour Sikiley Matarferðalag á Sikiley Ferðalag til Palermo Upplifun í Palermó Hvað á að gera í Palermo Palermo ferðaráð Menning og matur á Sikiley hvað er hægt að gera á sikiley góður matur ítalía ítalskur matur
Úti að borða á Cuvee Du Jour – Villa Igea

Palermo – matarborgin á Sikiley

Það kemur kannski ekki á óvart að við höfum kolfallið fyrir matnum í Palermó – þvílíkur veisluheimur! Maturinn er ekki bara ljómandi góður heldur líka ótrúlega fjölbreyttur, og maður rekst stöðugt á eitthvað sem kitlar forvitni og bragðlauka. Lokkandi ilmur svífur um alla miðborgina, þar sem lítil bakarí, kaffihús, veitingastaðir og sögulegir markaðir iða af lífi. Við röltum á milli og fengum okkur smá bita hér og þar – einhvers staðar örlítið djúpsteikt, annars staðar ferskt og súrsætt, alltaf var tekið á móti okkur með bros á vör. Sikileyingar eru hlýir og vingjarnlegir, og manni líður fljótt eins og hluta af bæjarlífinu.

Einhver skrifaði á samfélagsmiðlum: „Af hverju hefur enginn sagt mér frá Palermó?“ Við hugsuðum það sama. Þetta er staður sem læðist inn í hjartað – með ilmi, litum, og löngun til að borða allt.

Auglýsing

PALERMÓSIKILEYÍTALÍAMATARBORGIRMATARGANGAARANCINIEnglish

🇮🇹

Stigghiola – Grillaður kindainnmatur með vorlauk, oft borin fram með sítrónu, og salciccia (pylsa), hefðbundið götufæði.
Djúpsteiktar kjúklingabaunaþynnur og djúpsteiktar kartöflubollur
Baccalá fritto/sfincione – einn besti saltfiskréttur sem ég hef á æfinni bragðað. Veitingastaðurinn heitir Osteria Lo Bianco.
Cannoli er geysivinsæll eftirréttur á Sikiley. sikileyska eftirrétturinn, stökkur brauðhólkur fylltur með þeyttum ricotta með sykri, stundum með pistasíum, súkkulaði eða ávöxtum.
Arancini – Djúpsteiktar hrísgrjónakúlur oftast fylltar með einhverju kjötmeti (arancina con carne), fengum okkur líka með smjöri, osti og skinku (al burro), stundum fylltar pistasíum. Þurfa að vera nýsteiktar, ekki upphitaðar. Á degi heilagrar Lúsíu, (Santa Lucìa) 13. desember er borðað arancina allan daginn, með ýmsu bragði.
Salvo Albicocco er á fjórum stöðum í Palermó
Á Sikiley er kolkrabbi (ítalska: polpo) vinsæll hráefni og er oft matreiddur á einfaldan og bragðgóðan hátt í anda miðjarðarhafsmatar. Þrír vinsælir réttir: Grillaður kolkrabbi – Polpo alla griglia. Kolkrabbi í tómatsósu – Polpo alla Luciana. Pasta með kolkrabba – Pasta alla polpo
Scafazzato á Osteria Lo Bianco.
Spaghetti með rækjum, tómötum og pistasíum
Caponata er klassískur sikileyskur grænmetisréttur – uppistaðan er eggaldin, tómatar, laukur, sellerí, ólífur, kapers og edik. Caponata er dæmi um rétt sem hefur þróast úr fátækramat í veislurétt.
Einn af hápunktum dvalarinnar var að hlusta á Jóhann Kristinsson syngja bassa-aríurnar í Jóhannesarpassíunni (sem og Pílatus). Jóhann er ein af okkar skærustu stjörnum í söngheiminum og vel þess virði að taka sér langa ferð á hendur til að hlusta á hann.
Matarganga á vegum Secret food. Emma leiðsögukonan okkar tók myndina.
Pasta alla Norma. Pasta með tómatsósu, steiktu eggaldini, rifnum ricotta osti og basilíku.
Trattoria Al Ferro di Cavallo. Skemmtilega hrár staður. Bragðgóður matur, einföld og látlaus framsetning. Það er mjög hávær tónlist og ég fann svo mikið til með þjónustufólkinu sem hljóp og hljóp eins og það væri að æfa fyrir næstu Ólympíuleika svo mikið var að gera hjá þeim. Hefði alls ekki viljað missa af þessari upplifun.
Á Cuvee Du Jour – Villa Igea fengum við rækjur í forrétt, þá pasta með sikileyskum trufflum, blómkál í rjómasósu og loks grillaðan fisk
Það er fróðlegt að skoða Villa Malfitano í Palermo, glæsilegt hús með fjölmörgum herbergjum sem hvert og eitt er fagurlega skreytt. Það dró heldur úr ánægjunni við að skoða húsið að starfsmaðurinn var óþolinmóður og vild að við drifum okkur að ljúka skoðuninni. Frekar óviðeigandi í stóru húsi þar sem margt er að skoða. MEIRA HÉR.
Það er bæði hægt að keyra upp á Monte Pellegrino fjallið í Palermo eða fara þangað gangandi. Þessi leið er vinsæl meðal ferðamanna sem vilja njóta stórkostlegs útsýnis yfir borgina. Uppi er Santuario di Santa Rosalia, sem er byggðt inn í klettinn og er tileinkaður verndardýrlingi Palermo, hinni heilögu Rosaliu. ​
Crostata di marmellata di arance amare er baka með marmelaði sem er gert úr beiskum appelsínum

 

Við sáum Ástardrykkinn eftir Verdi í Óperuhúsinu í Palermó. Húsið, Teatro Massimo, er stærsta óperuhús Ítalíu og það þriðja stærsta í Evrópu. Það var vígt árið 1897 og er þekkt fyrir framúrskarandi hljómburð og glæsilegan nýklassískan stíl með grísk-rómverskum áhrifum. Þarna hafa allir og amma þeirra sungið, allt frá Caruso til Callas til Pavarotti.
Teatro Massimo varð heimsfrægt þegar lokaatriði kvikmyndarinnar The Godfather Part III var tekið þar upp, en dramatísk sena úr óperunni Cavalleria Rusticana var kvikmynduð á sviðinu. Húsið var lokað í rúman áratugi vegna viðgerða og pólitískra deilna en opnaði aftur með pomp og prakt árið 1997, akkúrat hundrað árum eftir vígslu þess.

PALERMÓSIKILEYÍTALÍAMATARBORGIRMATARGANGAEnglish

🇮🇹

Fyrri færslaPáskaostakaka
Næsta færslaMá tala um allt í matarboði?