Glútenlaust granóla – stökkt, næringarríkt og bragðgott

Stökkt heimagert granóla með hnetum, fræjum og þurrkuðum ávöxtum

0
Auglýsing
Glútenlaust granóla – stökkt, næringarríkt og bragðgott

Glútenlaust granóla – stökkt, næringarríkt og bragðgott

Það er fátt betra en að byrja daginn á góðu, heimagerðu granóla. Þetta glútenlausa granóla er stökkt, bragðmikið og fullt af góðgæti: haframjöli, fræjum, hnetum og þurrkuðum ávöxtum. Kanill og vanilla gefa því dásamlegan ilm og hlynsírópið sér um sætu og fallega karamelliseringu.

Granólað er frábært með jógúrti, AB-mjólk eða öðrum sýrðum mjólkurvörum og auðvitað má líka grípa lúku beint úr krukkunni þegar löngunin í eitthvað gott kemur yfir mann.

Auglýsing

Hnetu- og fræblönduna má auðveldlega laga að því sem til er hverju sinni. Macadamíuhnetur og pekanhnetur eru í sérstöku uppáhaldi hjá mér, en aðrar hnetur ganga auðvitað líka vel.

–  GRANÓLA  – MORGUNMATUR  – GLÚTENLAUST  – ÞURRKAÐIR ÁVEXTIR  –

.

Glútenlaust granóla

Glútenlaust granóla

3 bollar glútenlaust haframjöl
1 dl ólífuolía
½ dl hlynsíróp
½ dl kókosolía
2 tsk. kanill
2 tsk. vanillusykur
1 tsk. salt
1 dl macadamíuhnetur
1 dl pekanhnetur
3 dl blönduð fræ, t.d. graskersfræ, sesamfræ og sólblómafræ
150 g þurrkaðir ávextir

Hitið ofninn í 170°C.

Blandið ólífuolíu, hlynsírópi og kókosolíu saman. Bætið haframjöli, kanil, vanillusykri og salti út í og blandið vel. Dreifið blöndunni jafnt á ofnplötu klædda bökunarpappír og bakið í 15 mínútur.

Saxið macadamíuhneturnar og pekanhneturnar gróft og blandið þeim saman við fræin. Hnetu- og fræjablönduna má að sjálfsögðu laga að eigin smekk og því sem til er í skápunum.

Saxið þurrkuðu ávextina. Apríkósur og fíkjur eru sérlega góðar, en það má nota ýmsa þurrkaða ávexti eða blöndu af nokkrum tegundum.

Takið plötuna úr ofninum eftir 15 mínútur og blandið hnetum og fræjum saman við haframjölið. Bakið áfram í um 10 mínútur, eða þar til granólað hefur fengið fallegan gylltan lit.

Látið granólað kólna alveg. Blandið þá þurrkuðu ávöxtunum saman við og geymið í lokuðu íláti.

Ath.: Ef granólað á að vera örugglega glútenlaust, til dæmis fyrir fólk með glútenóþol, er mikilvægt að nota haframjöl sem er sérstaklega merkt glútenlaust.

  Fleira áhugavert:

–  Pasta  – Rabarbari  –  Afternoon Tea –  Sítrónukökur  –  Eftirréttir  –  Jarðarberjatertur   –  Salöt  —  Morgunmatur —

Fyrri færslaBerunes í Berufirði
Næsta færslaTómatbaka með Dijon sinnepi