Auglýsing
Steinaldarbrauð, brauð, bakstur plantago ovata forsK trefjar fræ steinaldabrauð steinöld gróft brauð fiber husk glútenlaust brauð gróft brauð
Steinaldarbrauð

Steinaldarbrauð

Hef áður skrifað hér um FiberHusk sem er algjört undraefni – það er malað hýði fræja af indversku plöntunni plantago ovata forsk. Margir fá of lítið af trefjum í fæðunni og þá er FiberHusk alveg kjörin viðbót – algjörlega lífrænt. Í upphaflegu uppskriftinn átti að vera möndlumjöl en því miður var það ekki til svo ég notaði rísmjöl. En brauðið bragðaðist afar vel og hér er uppskriftin lítillega breytt. Svo er nú gaman að segja frá því að brauðið er glútenlaust.

-Þegar ég bakaði brauðið í næsta skipti var ekki til kúrbítur svo ég reif niður hálft grænt epli og notaði í staðinn og sleppti ostinum. Enn betra brauð 🙂

Auglýsing

.

BRAUÐUPPSKRIFTIRMÖNDLUMJÖLKÚRBÍTURGLÚTENLAUST

.

Steinaldarbrauð

2 dl möndlumjöl (eða rísmjöl)
2 dl hörfræ
2 dl sólblómafræ
1 dl sesamfræ
1 dl graskersfræ
1 dl FiberHusk
2 tsk salt
2 dl rifinn ostur
2 dl rifinn kúrbítur
5 egg
1 tsk (vínsteins)lyftiduft
1/2 tsk matarsódi
3/4 dl góð olía
ca 1/2 dl vatn (eða rúmlega það).

Blandið öllu saman í skál, setjið í brauðform klætt bökunarpappír eða smurt með olíu. Bakið við 160°C í um klst.

steinaldarbrauð
Hráefnin í steinaldarbrauðið

.

BRAUÐUPPSKRIFTIRMÖNDLUMJÖLKÚRBÍTURGLÚTENLAUST

— STEINALDARBRAUÐ —

.

8 athugasemdir

  1. Sæll.
    Mér líst rosalega vel á þetta brauð en þar sem ég get ekki borðað ost þá var ég að spá hvort að þér dytti eitthvað í hug sem hægt væri að nota í staðin?

    bestu kveðjur

Comments are closed.