Hattar í boðum – hvað segir siðvenjan?

Hvernig á að bera hatt í boðum – einfaldar reglur og góðir siðir

0
Auglýsing
Hvenær á að taka ofan hattinn í boðum? Hér eru helstu reglur um hatta, borðsiði og kurteisi sem allir ættu að kunna.
Hattar í boðum – nokkrir hatta-siðir

Hattar í boðum – hvað segir siðvenjan?

Höfuðföt hafa í gegnum aldirnar gegnt mikilvægu hlutverki og oft verið tákn um stöðu, vald og virðingu. Það nægir að nefna kórónur konungsfjölskyldna eða hattasiði fyrri tíma.

En hvað á við í dag – sérstaklega í boðum og við matarborðið?

Auglýsing

Almenna reglan er einföld:
Karlmenn taka ofan þegar þeir koma inn og við borðhald.
Konur mega yfirleitt halda hattinum á sér, sérstaklega ef hann er hluti af klæðnaði.

Það eru þó undantekningar og smáatriði sem gott er að hafa í huga:

Karlmenn taka ofan þegar þeir heilsa, setjast til borðs eða eru innandyra.
Hattur á karlmanni við matarborð þykir almennt óviðeigandi.
Konur mega vera með hatt, en hann má ekki skyggja á aðra gesti eða trufla samskipti.
Í formlegum boðum er alltaf betra að fylgja hefðbundnum siðum.

Í dag eru reglurnar ekki eins strangar og áður, en góðir siðir snúast fyrst og fremst um tillitssemi við aðra.

Ef þú ert í vafa – þá er öruggasta leiðin alltaf að fara eftir því sem er látlaust, snyrtilegt og virðulegt.

KURTEISI/BORÐSIÐIR — – HATTAR

👒

Hattar í boðum – nokkrir hatta-siðir Hattar Þórhildur Þóra Fríða Signý Bubba Daddý Harpa
Þórhildur, Þóra Fríða, Signý, Bubba, Daddý og Harpa

👒

— HATTAR Í BOÐUM —

👒

Fyrri færslaRúsínubollur – mjúkar og góðar
Næsta færslaKaupfélagsbarinn í Neskaupstað