![Þurrkuð bláber Þurrkuð bláber helga sigurðar grænmeti og ber allt árið](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2016/09/14315431_10210398398665970_1821538690_o.jpg?resize=576%2C1024&ssl=1)
Þurrkuð bláber. Í þeirri ágætu bók Grænmeti og ber allt árið, sem af flestum var aldrei kölluð annað en Ber allt árið, útskýrir Helga Sigurðardóttir hvernig þurrka skuli bláber.
🫐
Þurrkuð bláber. Berin hreinsuð vel, raðað á pappír og þurrkuð úti fyrst einn dag. Þá eru þau látin í bakarofn, á pappírnum, og þurrkuð við 50-60 gráðu hita. og er ofninn hafður opinn. Þegar þau eru alveg skorpin eru þau fulllþurrkuð og eru þá geymd í línpoka. Þurrka má berin úti í þunnum línpoka úti í sól og vindi. Deigni þau aftur eru þau þurrkuð betur. Berin eru lögð í bleyti eins og aðrir þurrkaði ávextir daginn áður en á að nota þau.
-Úr bókinni Grænmeti og ber allt árið eftir Helgu Sigurðar.
🫐
— BLÁBER — HELGA SIGURÐAR — HÚSRÁÐ — ÍSLENSKT —
![Grænmeti og ber allt árið Grænmeti og ber allt árið Helga Sig sigurðardóttir þurrkuð bláber](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2016/09/IMG_7484.jpg?resize=696%2C882&ssl=1)
🫐
🫐