Jarðarberjaterta Ólafs

Jarðarberjaterta Ólafs ólafur bragason hráterta kaka raw food jarðarber
Jarðarberjaterta Ólafs

Jarðarberjaterta

Við fögnum í dag með Ólafi fimm ára afmæli hans. Afmæliskaffiborðið var hlaðið af góðgæti, meðal annars þessari jarðarberjatertu. Hrátertur eins og þessi eru einfaldar, fljótlegar og góðar. Þegar haldið var upp á eins árs afmæli hans var þessi Döðluterta í boði. Það skiptir engu hvort þið notið fersk eða frosin jarðarber í fyllinguna. Ef notuð eruð frosin þá er ágætt að hella kókosolíunni saman við síðast.

JARÐARBERJATERTURHRÁTERTUR

.

Jarðarberjaterta Ólafur
Ólafur 5 ára

Jarðaberjaterta – raw

Botn:
2 dl möndlur
2 dl döðlur
1 msk möluð hörfræ
1/3 tsk salt

Fylling:
2 1/2 b kasjúhnetur
safi úr tveimur sítrónum
vanilla
1/3 b kókosolía, fljótandi
1 msk gott hunang
smá salt

4 dl jarðarber.

Botn: Látið möndlur og döðlur liggja í bleyti í 20-30 mín. Hellið vatninu af, setjið í matvinnsluvél ásamt salti, hörfræjum og maukið. Takið lausan hring af tertubökunarformi, látið hann á tertudisk og „deigið” þar í og þjappið (má fara aðeins upp með hliðunum). Kælið

Fylling: Setjið kasjúhnetur, sítrónusafa, vanillu, kókosolíu, hunang og salt í matvinnsluvél og maukið vel. Bætið við jarðarberjunum og maukið áfram. Látið ofan á botninn og kælið í 2-3 klst. Skreytið með ferskum jarðarberju

Jarðarberjaterta Ólafs
Jarðarberjaterta Ólafs

.

— JARÐARBERJATERTA ÓLAFS —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.