Sú hefð hefur myndast hér að baka páskatertu ársins. Á hverju ári bökum við nýja tertu sem hlýtur sæmdartitilinn Páskaterta ársins. Hér má sjá lista yfir páskatertur síðustu ára Að þessu sinni er það undurgóð pistasíu- og granateplaterta. Guð minn góður hvað þessi terta er ljúffeng og það sem meira er: Daginn eftir er hún enn betri. Gleðilega páska.
225 g mjúkt smjör
200 g sykur
4 egg
börkur af 2 appelsínum
1/2 b hveiti
1 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
1 1/2 b pistasíur, malaðar fínt í matvinnsluvél
Þeytið vel saman smjör og sykur, bætið við einu og einu eggi og þeytið áfram. Bætið við berki, hveiti, lyftidufti, salti og pistasíum. Bakið við 160°C í um 50 mín.
Ofan á:
1 sítróna
60 g pistasíur
70 g sykur
smá salt
fræ úr einu granatepli
Rífið sítrónubörk gróft og kreistið safann. Skerið pistasíur í helminga. Setjið sykur og sítrónusafa í pott og sjóðið þangað til það er orðið að sírópi. Bætið berkinum við og loks pistasíunum og hellið yfir kökuna svona tíu mínútum eftir að hún kemur úr ofninum.
Stráið granateplafræjunum yfir.
Appelsínubörkur
Hér er ágæt aðferð til að ná fræjunum úr granateplunum
Hvenær á að setja appelsínu börkin, allt tilgreint nema það !!!!
Comments are closed.