Toblerone- og Daimterta – nammiterta allra tíma

Toblerone- og Daimterta - nammiterta allra tíma daim terta kaka
Toblerone- og Daimterta – nammiterta allra tíma

Toblerone- og Daimterta

Nammitertur eru nammitertur, það er nú bara þannig. Ef þið eruð í megrun eða eitthvað slíkt þá getið þið bara sleppt því að lesa þessa uppskrift. Þegar mikið stendur til eins og páskar, ferming eða annað slíkt má alveg skella í eina kalóríusprengju og njóta. Þessa tertu þarf ekki að baka en gott er að kæla hana vel áður en hún er borin fram, stórfínt er að útbúa hana deginum áður.

DAIMTERTURTOBLERONE

.

Toblerone- og Daimterta - nammiterta allra tíma mascarpone
Toblerone- og Daimterta – nammiterta allra tíma

Toblerone- og Daimterta 

1 pk Haust kex (eða annað hafrakex)

75 gr. smjör

2 msk olía

1 pk Daim súkkulaði

Bræðið smjör í potti og bætið olíunni saman við. Myljið Daim í matvinnsluvél og bætið kexinu saman við og malið áfram. Blandið brædda smjörinu saman við súkkulaði- og kexblönduna
Setjið deigið í bökuform, kælið.

Fylling:

200 gr Toblerone

3 msk síróp

50 gr smjör

1/3 tsk salt

1 egg aðskilið

1 dós Mascarpone

1 dl púðursykur

Hitið Toblerone, síróp og smjör í potti. Bætið við Macarpone og eggjarauðu og hrærið vel saman. Þeytið vel saman eggjahvítu og púðursykur og blandið saman við.
Hellið yfir botninn og kælið.

Skreytið með söxuðu Daim og stráið flórsykri yfir.

Toblerone- og Daimterta - nammiterta allra tíma
Toblerone- og Daimterta – nammiterta allra tíma
Toblerone- og Daimterta - nammiterta allra tíma
Toblerone- og Daimterta – botninn

DAIMTERTURTOBLERONE

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.