
Hollenskir möndluklattar – Gevulde koek
Klattarnir eru klassískt hollenskt bakkelsi, fást víða í bakaríum og skipa svipaðan sess og scones í Englandi og chocolate chip cookies í Bandaríkjunum.
Bergdís frænka mín var nýlega í Amsterdam og fékk dýrindis möndluklatta á kaffihúsi einu.
„Þegar ég borðaði klattann rifjaðist upp fyrir mér að í þau tvö fyrri skipti sem ég hef komið til Hollands var ég sérstaklega hrifin af þessum klöttum. Já! ég er mjög hrifin af öllu bakkelsi með möndlum og fór því í smá rannsóknarvinnu þegar ég kom heim, hafði uppi á kökunum á netinu og prófaði nokkrar uppskriftir til að finna hina fullkomnu möndluklatta. Hér eru þeir, unaðslega seigmjúkir að innan með hrjúfu ytra byrði.“
#2017Gestabloggari 43/52 – Holland — Bergdís Ýr – Smákökur – Möndlur –
.

Hollenskir möndluklattar – Gevulde koek
Möndlufylling
125 g möndlur
125 g sykur
1 egg
1 tsk. rifinn sítrónubörkur, minna eða meira eftir smekk
1 tsk. möndludropar, minna eða meira eftir smekk
Klattadeig
300 g hveiti
200 g smjör, kalt og skorið í bita
150 g sykur
Ofan á klattana
1 egg
12 möndlur
Hitið ofninn í 175°C.
Möndlufylling – aðferð
Setjið vatn í pott og möndlurnar út í þegar vatnið nær suðu. Takið pottinn af hellunni og látið möndlurnar liggja í vatninu í nokkrar mínútur. Hellið þeim í sigti og látið kólna aðeins áður en þær eru afhýddar með höndunum. Til að einfalda þetta skref má vitanlega kaupa hýðislausar möndlur, þó þær séu aðeins dýrari.
Setjið möndlurnar í matvinnsluvél ásamt sykri, eggi, sítrónuberki og möndludropum. Gott er að byrja með minna magn af sítrónuberki og möndludropum en gefið er upp, þar sem smekkur manna er misjafn. Mér finnst mikilvægt að nota ekki of mikinn sítrónubörk því hann getur yfirgnæft möndlubragðið – en þó nægilega mikinn til að lyfta því. Hér dugar aðeins eitt ráð: að smakka!
Setjið fyllinguna í sprautupoka þegar hún er orðin seigfljótandi. Rennilásapoki getur líka komið að góðum notum ef sprautupoki er ekki við höndina. Geymið fyllinguna á meðan klattadeigið er útbúið.
Klattadeig – aðferð
Blandið hveiti og sykri saman í stórri skál. Setjið smjörið út í og vinnið það saman við hveiti- og sykurblönduna þar til úr verður þykkt deig. Hnoðið deigið örlítið á eldhúsbekk þegar það er farið að haldast saman.
Ef deigið er of þurrt má bleyta fingurna lítillega með vatni. Sé það of blautt má sáldra örlitlu hveiti á eldhúsbekkinn og hnoða deigið upp úr því. Deigið á að hanga vel saman því næst er það flatt út með kökukefli, svipað og piparkökudeig.
Fletjið deigið út í nokkrum umferðum, þar sem erfitt er að vinna með allt deigið í einu. Hafið það ekki of þunnt því þá verður erfiðara að vinna með klattana. Sáldrið örlitlu hveiti undir og yfir deigið svo það festist síður við kökukeflið og eldhúsbekkinn.
Skerið út hringi með hringlaga formi, um 7–10 cm í þvermál, og raðið á bökunarpappírsklædda ofnplötu. Ein uppskrift gefur 12 klatta og því þarf 24 deighringi.
Raðið 12 hringjum á bökunarplötuna og sprautið möndlufyllingunni á þá, frá miðju og út. Látið fyllinguna ekki ná alveg út að brúnum. Leggið hina 12 deighringina ofan á. Bleytið fingurna örlítið með vatni og þrýstið brúnum deighringjanna saman svo möndlufyllingin leki ekki út.
Setjið eina möndlu ofan á hvern klatta, með eða án hýðis eftir smekk.
Þeytið eggið létt og penslið klattana. Bakið í um 25 mínútur á blæstri. Ef klattarnir eru ekki orðnir fallega gullinbrúnir má hækka hitann undir lokin í stutta stund. Fylgist vel með þeim svo þeir brenni ekki.
Látið klattana kólna. Þeir eru bestir kaldir, þegar möndlubragðið fær að njóta sín, og eiga einstaklega vel við með kaffi, tei eða kaldri mjólk.
Smellið á til að sjá meira:
#2017Gestabloggari 43/52 – Holland – Bergdís Ýr – Smákökur – Möndlur –
