Pekanhnetudraumur Svanhvítar

Pekanhnetudraumur, Kristján Jóhannsson Svanhvít þórarinsdóttir, smákökusamkeppni, smákökur
Pekanhnetudraumur Svanhvítar

Pekanhnetudraumur

Svanhvít Þórarinsdóttir kom með þessar fallegu og góðu smákökur í smákökusamkeppni Íslensku lögfræðistofunnar. Það var einhver notalega sæla sem fylgdi þessum smákökum og dómnefndarmenn höfðu á orði að gott væri að borða þær með góðum kaffisopa.

„Ég fékk þessar kökur fyrir nokkrum árum hjá frænku minni, og var alltaf meðuppskrift handskrifaða hjá mér, sem ég rakst svo á þegar ég var að finna eitthvað til að baka fyrir smákökukeppnina” segir Svanhvít og skrautið fékk hún í Allt í köku.

SMÁKÖKURJÓLIN

.

Pekanhnetudraumur

150 g hveiti

200 g smjör

200 g púðursykur

smá mjólk

1/2 tsk salt

100 gr. kakósmjör

1 tsk. vanillusykur

1 tsk. lyftiduft

250 gr. karmellusúkkulaði, saxað

200 g pekanhnetur, saxaðar

Hrærið öllu saman, mótið kökur og bakið í 8-10 mín á 170 gr. hita. – Síðan fannst mér þær ekkert fallegar svo að ég tvistaði þær til með smá skrauti 😉

Svanhvít til hægri á góðri stund með Kristínu Einarsdóttur vinkonu sinni

 

Dómnefndin að störfum. Bergþór, Kristján Jóhannsson og Albert
Dómnefndin og keppendur

SMÁKÖKURJÓLIN

— PEKANHNETUDRAUMUR SVANHVÍTAR —

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.