Berta Dröfn með Kosta Ríka veislu

Berta Dröfn ómarsdóttir með Kosta Ríka veislu
Albert og Berta Dröfn

Berta Dröfn með Kosta Ríka veislu

Söngkonan Berta Dröfn kann svo sannarlega að lifa lífinu og lætur drauma sína rætast. Það fréttist ýmist af henni syngjandi í uppfærslum í New York eða á Ítalíu. Þegar ég hitti Bertu um daginn var hún að pakka niður fyrir tónleikaferð til Ítalíu. Veisluborð Bertu er innblásið af Kosta Ríka mat en þangað fór hún sautján ára sem skiptinemi og dvaldi í heilt ár.

BERTA DRÖFN ÍTALÍACEVICHEEFTIRRÉTTIR

.

Ceviche
Ceviche

Ceviche. Einn af mínum uppáhaldsréttum frá Kosta Ríka. Tíkos (fólk frá Kosta Ríka) borða þennan rétt yfirleitt á bar eða í partýi.

Ceviche

700 g ýsa
5-7 lime
1 rauður pipar
½ laukur
½ askja af kóríander
1 tsk salt
250 ml. Ginger ale

Sósan:
4 msk Hellmann’s majónes
½ sítróna
1 tsk sykur

Aðferð:
Skerið fiskinn í teninga. Kreistið lime yfir fiskinn, þannig að safinn hylji hann allann.
Skerið piparinn, laukinn og kóríanderinn frekar fínt og hræðið því létt við fiskinn. Saltið.

Geymið í lokuðu íláti inní ískáp í alla vegana 9 klst.
Þrem klukkustundum áður en rétturinn er borinn fram, hellið Ginger ale yfir.

Setjið innihald sósunnar í skál og hrærið saman.

Almuerzo casero - Carne con arroz y frijoles. Hversdagslegur heimilismatur Tíkó-style
Almuerzo casero – Carne con arroz y frijoles. Hversdagslegur heimilismatur Tíkó-style

Almuerzo casero – Carne con arroz y frijolesHversdagslegur heimilismatur Tíkó-style. Það tók Bertu smá tíma að venjast heimilsmatnum í Kosta Ríka, henni fannst svo skrýtið að bera fram matinn sósulaust. En bæði baunirnar og tómatsalatið gefa töluverðan vökva sem er alveg nóg til að maturinn sé ekki þurrt. Hrísgrjón og baunir er mjög hefðbundið meðlæti og ómissandi fyrir Tíkós – eins og kartöflurnar og sósa hérlendis. „Eftir að ég kom aftur heim saknaði ég baunanna mest úr Kosta Ríka matarhefð.” segir Berta

Almuerzo casero – Carne con arroz y frijolesHversdagslegur heimilismatur Tíkó-style.

½ kg ungnautasnitzel
1 poki Tilda hrísgrjón
¼ poki svartar baunir
3 Platano (enska: Plantain / íslenska: bökunarbananar)
3 tómatar
1 lime
½ laukur
1 msk Mole sósa
1 tsk Chipotle paste
1 tsk Tabasco
1 grænmetisteningur
500 g djúpsteikingarfeiti
olía
kóríander
salt

Fyrst þarf að huga að baununum. Tíkós borða baunir í öll mál; morgun-, hádegis- og kvöldmat. Á heimilum er yfirleitt soðinn stór pottur af baunum ca. einu sinni í viku sem nýtist svo alla vikuna.

Svona er þetta gert:
Leggið baunirnar í bleyti í 12 klst. Sjóðið þær í 10 mín. og látið kólna í vatninu.
Takið sigti og skolið baunirnar yfir vaski.
Setjið baunirnar aftur í pott og vatn þannig að það hylur þær. Látið sjóða, hrærið reglulega í og bætið við vatni eftir þörfum. Lækkið hitann og setjið Mole sósu, chipotle paste, tabasco og smá salti út á.
Baunirnar eru tilbúnar þegar þær byrja að maukast saman. Þá má setja lokið á pottinn og leyfir þeim að standa á eldavélinni.
Það er gott að snöggsteikja þær á pönnu og setja kóríander yfir rétt áður en þær eru bornar fram.

Kjötið: Barið þunnt. Kreistið smá lime safa yfir og saltið. Steikt í olíu á pönnu.

Hrísgrjón: Soðin með grænmetisteningi

Platano: Þunnskornir og djúpsteiktir í heitri olíu

Tómatasalat: Skerið tómatana og laukinn í litla bita og kreistið ½ lime yfir. Bætið salti og kóríander út á eftir smekk.

Ensalada de fruta - Ávaxtasalat
Ensalada de fruta – Ávaxtasalat

Ensalada de fruta – Ávaxtasalat

2 bananar
1 mangó
1 kaki
½ gul melóna
lítið box af jarðaberjum
½ dós af niðursoðinni mjólk
Vanilluís

Skerið ávextirnir og setjið í stóra skál. Setjið mjólkina í litla könnu og berið fram með vanilluís.

.

— KOSTA RÍKA VEISLA BERTU —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.