Hreindýracarpaccio – huggulegur og bragðgóður forréttur

Hreindýracarpaccio - fáskrúðsfjörður villibráð hreindýr huggulegur og bragðgóður forréttur Hreindýra Carpaccio þórhildur Helga Kolfreyjustaður hreindýr forréttur villibráð HREINDÝRAFRORÉTTUR helga þorleifs
Hreindýracarpaccio – huggulegur og bragðgóður forréttur

Hreindýra- Carpaccio

Helga æskuvinkona mín frá Kolfreyjustað og Bogi hennar maður héldu MATARBOРþar sem hreindýracarpaccio var í forrétt.

— HREINDÝRKOLFREYJUSTAÐURÞÓRHILDUR HELGA CARPACCIO

.

Hreindýra- Carpaccio

Hreindýrakjöt

Ólífuolía

Flögusalt

Svartur pipar

Klettasalat

Ristaðar furuhnetur

Parmasanostur

Balsamsýróp

Góður vöðvi- þerraður, ólífuolía pensluð á- flögusalt og nýmalaður svartur pipar nuddað á vöðvann. Pakkað þétt inn í plastfilmu. Gott að láta standa í sólarhring og setja síðan í frysti.
Tekið úr frysti þann dag sem skal etast. Þegar vöðvinn er hálfþiðinn er hann skorinn í örþunnar sneiðar. Þeim raðað á disk, klettasalat sett ofaná, ristaðar furuhnetur og gróft rifinn parmasenostur. Balsamsýrópi driplað yfir.

Niðursneitt hreindýr

— HREINDÝRKOLFREYJUSTAÐURÞÓRHILDUR HELGA CARPACCIO

— HREINDÝRACARPACCIO —

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.