Eiga menn að opna bíldyrnar fyrir konu sinni?

Eiga menn að opna bíldyrnar fyrir konu sinni? bílhurð hurð á bíl bíll kurteisi borðsiðir mannasiðir etiquette
Eiga menn að opna bíldyrnar fyrir konu sinni?

Eiga menn að opna bíldyrnar fyrir konu sinni?

Borðsiðir og kurteisi taka breytingum með tímanum en hin almenna regla ekki; að taka tillit til annarra. Góðir siðir, eins og borðsiðir, mannasiðir og kurteisi, eru mikilvægir til þess að öllum líði sem best, hverjar sem aðstæðurnar eru.
Í gamla daga þótti sjálfsagt og eðlilegt að karlmenn opnuðu bíldyrnar fyrir konu sinni. Við og við heyrðist að þeir sem ekki stunduðu þá sjálfsögðu herramennsku „kynnu sig ekki”. Konur í fyrirferðarmiklum kjólum, misþægilegum klæðnaði, með stóra hatta eða á háum hælum hafa eflaust verið þakklátar fyrir aðstoðina. Núna er öldin önnur og það telst kannski ekki eins sjálfsagt og áður fyrr að karlarnir opni bíldyr. Sumum konum finnst það jafnvel óþægilegt, finnst eins og þær séu undirgefnar karlinum, á meðan aðrar finna til sín við slíka þjónustu, finnst hún bæði sjálfsögð og eðlileg.

En hvað skal gera?
Besta ráðið er að hjón/pör ræði þetta sín á milli svo ekki verði úr óþarfa spenna eða ósætti yfir því sem í denn þótti eðlileg og sjálfsögð kurteisi.
Hið sama á við þegar pör ganga inn í hús. Hjón og sambýlisfólk þurfa að ræða þetta sín á milli. Það getur verið bæði fallegt og ákveðin virðing sem því fylgir að sjá dyr opnaðar fyrir maka, en aðeins ef báðir aðilar eru sáttir við slíkt.

FLEIRI BORÐSIÐAFÆRSLUR

.

Greinin birtist í Morgunblaðinu í ágúst 2019
Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.