Sveppahnetusteik

 

Sveppahnetusteik hnetusteik sveppasósa Sætkartöflumús með hvítu súkkulaði kartöflumús hvítt mús Steiktar andabringur önd endur Bergþór Kristín Ragnarsdóttir Ragna Ragnars Sólrún björnsdóttir guðrún sveinsdóttir albert jólaboð jólamatur veisla jólin jól aðventa Silla Páls ljósmyndari
Sveppahnetusteik Myndir: Silla Páls

Það er ekki svo flókið að útbúa góða hnetusteik

 Sveppahnetusteik

1/2 b ólífuolía
2 stilkar sellerí, saxaðir
1 stór laukur, saxaður
2 b fínt saxaðir sveppir
2 tsk rósmarín
1/2 tsk salt
1/2 tsk pipar
1/3 b saxaðir sólþurrkaðir tómatar
1/3 b hvítvín
3 egg
1 b rasp
1 tsk lyftiduft
1 b saxaðar valhnetur
1/2 b sólblómafræ
1/2 b tómatsósa

Hitið olíuna á pönnu léttsteikið sellerí og lauk. Bætið við sveppum og kryddi og steikið áfram þar til sveppirnir hafa tekið fallegan lit (ca 4 mín). Bætið við sólþurrkuðum tómötum, og hvítvíni – látið sjóða í um 2 mín. kælið

Hrærið saman eggjum, raspi, lyftidufti, tómatsósu og bætið út í sveppablönduna ásamt valhnetum og sólblómafræjum. Bakið í ofni 150° í um klst. Látið standa í 10-15 mín áður en þið skerið niður.

Sveppasósa með hnetusteik

1 1/2 b niðursneiddir sveppir
2 b grænmeti, t.d.gulrætur, sellerí, lauk,
5 msk góð olía
2 hvítlauksrif, söxuð
2-3 msk villisveppir, saxaðir
1 tsk estragon
1 tsk timian
grænmetiskraftur
salt og pipar
1/2 b kókosmjólk
2-3 msk sérrý
sósulitur ef þarf

Steikið sveppi á pönnu í olíu, bætið við grænmetinu og villisveppunum. Kryddið. bætið við kókosmjólk og sérrýi og sjóðið í um 10 mín.
Maukið í blandara eða með töfrasprota. Þykktin á sósunni ákvarðast af magni kókosmjólkurinnar, þannig að nauðsynlegt er að fylgjast vel með þegar hún er sett út í.

MEÐLÆTIÐ:

Sætkartöflumús með hvítu súkkulaði

Eplasalat með súkkulaði og gráfíkjum

Skálað í jólaboði fyrir Húsfreyjuna. Bergþór, Kristín, Ragna, Sólrún, Guðrún og Albert
Kristínu og Rögnu skenkt í glösin

JÓLINHNETUSTEIKHÚSFREYJANSILLA PÁLS

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.