Kaffi og meira kaffi

kaffi uppáhellingur kaffibolli export

Kaffi og meira kaffi. Það er eitthvað svo ljúft að fá sér „góðan” kaffibolla. Flest erum við sérvitur þegar kemur að kaffinu og hvernig það „á að vera”. Einhverju sinni hætti ég að drekka kaffi í heilan mánuð, bara til að sjá hvort ég gæti það. Kaffi hefur verið stór hluti af lífi mínu frá barnæsku. Það afsannaðist á mér að börn hætta að stækka ef þau drekka kaffi 🙂  Satt best að segja var ekki svo erfitt að hætta, smá höfuðverkur fyrstu dagana. Þegar ég byrjaði svo kaffidrykkjuna aftur eftir mánaðarhvíld fann ég bragð sem ég hafði ekki tekið eftir áður, kaffið var beiskt og svolítið súrt. En smátt og smátt varð kaffið ljúffengt sem fyrr.

SJÁ EINNIG: KAFFIMEÐLÆTIKAFFIKAFFISOPINN INDÆLL ER…

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.