Veisluborð hjá Kvennakór Ísafjarðar

kór kvennakór kórar Mexíkóskt lasagna mexíkó sóley Dumble nammibitar bryngerður fjóla Anna Fía Köld salsaídýfa Quesadilla hringur inga rós Frönsk súkkulaðiterta Mexíkóþema hjá Kvennakór Ísafjarðar ísafjörður mexíkó kór kórar kvennakór pálínuboð ísafjörður
Mexíkóþema hjá Kvennakór Ísafjarðar

Veisluborð hjá Kvennakór Ísafjarðar

Bergþór minn tók að sér að stjórna Kvennakór Ísafjarðar, ég fékk að vera fluga á vegg á æfingu kórsins. Þetta var æfing sem lauk á matarveislu og söng af ýmsu tagi og karókí. Slíkar æfingar eru a.m.k. einu sinni á önn. Í þetta sinn var mexíkóskt þema. Það má með sanni segja að það er ekki bara metnaður í söng hjá Kvennakór Ísafjarðar, heldur einnig og ekki síður í veitingum.

ÍSAFJÖRÐUR —  KVENNAKÓRARKÓRARMEXÍKÓKLÚBBARÉTTIRPÁLÍNUBOÐDUMLE

.

Kristín Bjarnadóttir; Ég bræddi 250 gr. af suðusúkkulaði (passa að bræða ekki of mikið), hellti því á bökunarpappir og dreifði úr því, stráði yfir söxuðum pistasíum, trönuberjum eftir smekk og að endingu smá reykjanessalti, lét þetta kólna í ísskápnum í ca. 1 klst. og braut þetta síðan niður.
Dumle nammibitar sem Bryngerður Súla kom með

Dumble nammibitar

300 g Dumle karamellur
130 g smjör
200 g lakkrísreimar (fylltar eða ófylltar)
90 g kornflex, mulið gróft

Bræðið karamellur og smjör í potti
Bætið lakkrís (skerið niður) og kornflexi saman við hrærið saman.
Setjið í form (24x34cm), klætt smjörpappír. Kælið

Krem
400 g rjómasúkkulaði
60 g smjör

Bræðið súkkulaði og smjör. Hellið yfir nammið í forminu.
Kælið. Skerið í litla bita

Anna Fía kom með kalda salsaídýfu

Köld salsaídýfa. Hér er uppskrift af köldu salsa sem er eiginlega engin uppskrift, meira svona slump en er sirka svona 🙂

400 gr. hreinn rjómaostur
1 krukka doritos salsa sósa

Hrært saman og sett í form.

Iceberg salat, tómatar og rauðlaukur skorið smátt og dreift yfir.

Borðað með doritos flögum.

Mexíkóskt lasagna sem Sóley kom með. Uppskriftin kemur úr Matargleði Evu Laufeyjar en er hér breytt.

Mexíkóskt lasagna

500 gr nautahakk
1 msk ólífuolía
3 stórar tortillur
½ meðalstór rauðlaukur, smátt saxaður
½ rauð paprika, smátt söxuð
½ græn paprika, smátt söxuð
1 box sveppir smátt saxaðir
¼ rautt chili, fræhreinsað og smátt saxað
2-3 msk kóríander, smátt saxað
Mexíkósk kryddblanda
1 dós gular baunir
1 dós niðursoðnir tómatar, saxaðir
250 gr salsasósa (medium)
3 msk hreinn rjómaostur
Rifinn ostur
Nachos flögur
Salt og pipar

Skolið grænmetið og skerið í litla bita. Hitið olíuna í potti við vægan hita og setjið grænmetið út í og mýkið. Brúnið nautahakkið á pönnu og bætið kryddblöndunni saman við samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum. Blandið því næst hakkblöndunni saman við grænmetið í pottinum. Bætið gulu baununum, niðursoðnu tómötunum, salsasósunni og rjómaostinum saman við. Hrærið svo vel í og kryddið með salti og pipar.
Að lokum saxið þið um það bil 2 msk af ferskum kóríander og bætið við. Leyfið þessu að malla við vægan hita í nokkrar mínútur. Munið að smakka ykkur til með salti og pipar. Setjið helminginn af hakkblöndunni í botninn á eldföstu móti, raðið tortillakökunum yfir og restina af hakkblöndunni yfir. Dreifið rifnum osti yfir. Setjið réttinn í ofn og bakið við 180°C í 25 – 30 mín. Þegar rétturinn er kominn út úr ofninum er gott að stinga nachos flögum meðfram kantinum og strá fersku kóríander yfir. Gott að bera sýrðan rjóma og nachos flögur fram með réttinum.

Dagný Finnbjörnsdóttir kom með blómkáls buffalo vængir

Blómkáls buffalo vængir

150 gr. hveiti
1 tsk. papriku krydd
1 tsk. hvítlaukskrydd
1 tsk. salt
1/2 tsk. pipar
1 tsk. chilli pipar
2 msk. olía
30 gr. hunang
200 ml. mjólk
1 stk. stór blómkálshaus.
120 ml. Red hot wings sósa

– Kveikja á ofninum og stilla á 200° blástur
– Taka blómkál í sundur og skipta upp í hentuga stærð
– Allt innihald sett saman í skál og hrært vel saman, blómkáli velt upp úr og sett í eldfast mót.
– Inn í ofn í u.þ.b. 20-25 mín
– Í lokinn 1 msk. hunang og 1 msk. olíu hrært saman og smurt létt yfir vængina áður þeir eru bornir fram.
mjög gott er svo að bera þetta fram með gráðostasósu 🙂

Inga Rós kom með Quesadilla hring. Uppskriftin birtist HÉR.

Quesadilla hringur

4-5 dl rifinn kjúklingur (ég keypti heilan kjúkling og reif hann niður)
10 sneiðar beikon
1 ½ dl blaðlaukur
2 tómatar
3 pkn hveititortillur frá Mission
1 krukka salsasósa frá Mission
1 krukka ostasósa frá Mission
2 dl Havarti ostur með jalapeno (fæst t.d. í Krónunni)
2-4 dl rifinn mozzarella ostur
2 dl rifinn cheddar ostur
Ferskt kóríander

AVÓKADÓ SÓSA

3 avókadó
1 dl sýrður rjómi
Safi úr 1 lime
½ tsk salt
¼ tsk pipar
¼ tsk laukduft
¼ tsk hvítlauksduft
Chili flögur eftir smekk

Byrjið á því að leggja beikonið á bökunarplötu þakta bökunarpappír og bakið í 10-12 mínútur við 200°C eða þar til beikonið er orðið stökkt.
Skerið blaðlauk, tómata og beikon smátt.
Setjið rifinn kjúkling í skál. Bætið út í blaðlauknum, tómötunum, beikoni, 2 dl rifnum Havarti osti með jalapeno, 1 dl rifnum cheddar osti og salsa sósunni. Blandið vel saman.
Skerið tortillurnar til helminga og smyrjið með rúmlega 1 tsk af ostasósu. Dreifið rifnum mozzarella osti yfir og rúmlega 1 msk af kjúklingablöndunni á alla helmingana. Rúllið tortillunum upp þannig að þær mynda kramarhús.
Notið hringlótt eldfast mót eða bökunarpappír. Setjið þá sósuskál sem þið ætlið að nota í miðjuna. Raðið tortilla rúllunum upp í hring.
Blandið saman 1 dl cheddar ost og 1 dl mozzarella ost. Dreifið helmingnum af ostinum yfir tortilluhringinn og raðið svo restinni af tortillurúllunum ofan á þannig að það myndist tvær hæðir. Dreifið svo restinni af ostinum yfir.
Takið sósuskálina frá og bakið í ofni við 190°C í 10-12 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður.
Blandið öllum hráefnunum í sósuna saman með töfrasprota eða matvinnsluvél. Hellið í sósuskálina og setjið hana í miðjuna á tortilluhringnum. Dreifið kóríander yfir eftir smekk og njótið.

Svanhildur kom með franska súkkulaðitertu

Frönsk súkkulaðiterta

Kakan:
4 egg
2 dl sykur
200 gr smjör
200 gr suðusúkkulaði
1 dl hveiti

Súkkulaðibráð:
150 gr. suðusúkkulaði
70 gr. smjör
2 msk. sýróp

Kakan: Hitið ofn í 170C. Egg og sykur þeytt vel. Smjör og súkkulaði brætt saman við vægan hita og er svo varlega bætt saman við eggin og sykurinn. Bætið hveitinu saman við og hrærið. Setjið í form og bakið í 30 mín (hún á að vera svolítið blaut – ég hef klætt lausbotna form með ál- eða bökunarpappír, bæði svo hún leki ekki úr og auðvelt að ná henni úr).

Súkkulaðibráð: Allt brætt saman við vægan hita, kælt aðeins og svo hellt yfir kökuna.

Best með þeyttum rjóma og berjum 🙂

Sóley, Arndís og Hildur fyrir aftan, og fyrir framan eru Margrét, Gunnfríður og Dagný.
Jóhanna, Bryngerður Súla og Ástrún.
Sætabrauðsdrengirnir mættu óvænt á æfinguna og tóku nokkur lög

.

ÍSAFJÖRÐURKÓRARMEXÍKÓKLÚBBARÉTTIRPÁLÍNUBOÐ —  KVENNAKÓRAR —

— KVENNAKÓRSVEISLUBORÐ —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.