Blómkálsmús
Það sem blómkál er einstaklega hollt, bragðgott og næringarríkt grænmeti. Það er ríkt af C-vítamíni, K-vítamíni og fólasíni, auk þess að innihalda andoxunarefni og trefjar. Svo eru frekar fáar hitaeiningar í blómkáli, fyrir ykkur sem teljið þær 🙂
Í um 100 grömmum af blómkáli eru um það bil 1,9 grömm af próteini. Þó blómkál sé ekki mjög próteinríkt miðað við til dæmis kjöt, fisk eða baunir, er það góður hluti af próteinríku og hollu mataræði, sérstaklega fyrir þá sem fylgja plöntumiðuðu mataræði.
— BLÓMKÁL — GRÆNMETI — KARTÖFLUMÚS — MEÐLÆTI — MÚS —
.
Blómkálsmús
- 1 frekar stór blómkálshaus (um 700-800 g)
- 2 msk smjör (eða ólífuolía)
- 2-3 msk rjómi eða rjómaostur
- Salt og pipar
- 1-2 hvítlauksrif, söxuð
- 1 msk rifinn parmesanostur
- 1/3 tsk múskat
- Fjarlægið stilka og lauf af blómkálinu og skerið í bita.
- Setjið blómkálsbitana í pott með vatni og smá salti. Látið suðuna koma upp, lækkið og látið sjóða í um 10-15 mínútur, eða þar til blómkálið er orðið mjúkt. Það ætti að vera auðvelt að stinga í það með gaffli.
- Sigtið vatnið frá blómkálinu og látið það standa í sigtinu í nokkrar mínútur til að fjarlægja eins mikið af vatni og mögulegt er.
- Setjið blómkálið smjör, rjóma hvítlauk, múskat, parmesen, salt og pipar í matvinnsluvél eða notið töfrasprota og maukið þar til það er mjúkt. Smakkið til.
- Berið blómkálsmúsina fram heita, til dæmis með kjöti, fiski eða grænmeti.
Góð ráð:
- Til að fá mýkri áferð, má setja meira af rjóma eða rjómaosti.
- Til að fá meira bragð, má bæta við graslauk, rósmarín eða sítrónuberki.
— BLÓMKÁL — GRÆNMETI — KARTÖFLUMÚS — MEÐLÆTI — MÚS —
.