Hundasúru- og steinseljupestó

Íslenskt og ferskt pestó úr hundasúrum, steinselju, basil og ristuðum kasjúhnetum

0
Auglýsing
Hundasúru- og steinseljupestó – ferskt og bragðmikið pestó úr hundasúrum, steinselju, basil og kasjúhnetum. Nýtum það sem náttúran gefur.

Hundasúru- og steinseljupestó

Hundasúrur eru ein af þessum jurtum sem margir muna eftir úr bernsku: súr, fersk blöð sem freistuðu manns úti í náttúrunni. Á Vísindavefnum kemur fram að nafnið sé líklega komið til af því að blöðin þóttu ekki eins góð og blöð túnsúrunnar og því hafi plantan verið kennd við hunda í niðrandi merkingu.

Hundasúra, Rumex acetosella, vex víða á Íslandi. Hún er auðþekkt á litlum, súrum blöðum með útstæðum „eyrum“ neðst á blaðinu. Bragðið er ferskt, sítrónukennt og hentar vel í salöt, súpur, sósur, bökur — og ekki síst í pestó.

Auglýsing

Það er bæði skemmtilegt og hollt að nýta það sem vex í kringum okkur, svo lengi sem við þekkjum jurtirnar vel og tínum á hreinum stöðum, fjarri umferð og mengun. Hundasúrur innihalda oxalsýru, sem gefur þeim súra bragðið, og því er best að njóta þeirra í hófi, eins og á við um margar aðrar súrur.

Í þessu pestói blandast hundasúrurnar við steinselju, basil, hnetur, hvítlauk og ost. Útkoman er bragðmikið, íslenskt og sumarlegt pestó sem passar vel með brauði, pasta, fiski, grænmeti eða sem fersk sósa með góðum mat.

 –  PESTÓ   – ÍSLENSKT  –  STEINSELJA  –

.

Hundasúru- og steinseljupestó
Hundasúru- og steinseljupestó

Hundasúru- og steinseljupestó

1 b ný­tíndar hundasúrur
1 b basil
1 b steinselja
100 g kasjúhnetur, ristaðar á þurri pönnu
2–3 hvítlauksrif
1–2 dl ólífuolía
1 tsk sítrónubörkur
100 g parmesanostur eða fetaostur
svartur pipar
salt, ef þarf

Maukið hundasúrur, basil, steinselju, kasjúhnetur, hvítlauk, ólífuolíu, sítrónubörk og ost saman í matvinnsluvél þar til pestóið er sæmilega slétt. Smakkið til með pipar og salti. Bætið við meiri olíu ef þið viljið mýkra pestó.

Hundasúrur blöndusúrur
Hundasúrur

Fleira áhugavert:

—  Hollt og mjög gott hjá Elínu Ósk  –  Saltfiskur í ólífuolíu  — Póstlistinn  —  Rommkúluterta  — Kókosterta — Brún lagkaka   — Rúgmjölspartar   — Ásta Snædís býður í kaffi   — Hægeldaðir lambaskankar    — Kaldur brauðréttur með rækjum og ananas    –

Fyrri færslaVeitingastaðurinn Sól
Næsta færslaSvartaskógarterta – Schwarzwald Torte