Boeuf bourguignon all´italiana með ofnsteiktum kartöflum

Boeuf bourguignon all’italiana – hægeldaður nautapottréttur með rauðvíni og stökkum kartöflum

0
Auglýsing
Garðar Thór og Gissur Páll taka stöðuna „Þetta er matur sem kallar á tíma, ró og gott vín – og umbunar ríkulega fyrir það.“

Boeuf bourguignon all´italiana með ofnsteiktum kartöflum.

Þessi útgáfa af Boeuf bourguignon all’italiana er bæði safarík og bragðmikil – frönsk klassík hittir ítalskan karakter með tómötum, kryddjurtum og rauðvíni. Rétturinn mallar hægt þar til kjötið verður mjúkt og safaríkt, og með stökkum ofnsteiktum kartöflum verður þetta alvöru veisluréttur sem slær alltaf í gegn.

Upprunalega var rétturinn eldaður í sumarbústað þar sem sungið var og notið lífsins – og það er einmitt þannig matur sem þessi er: hægeldaður, hlýr og fullur af stemningu.

Auglýsing

FRAKKLANDGISSUR PÁLLKJÚKLINGURGARÐAR THÓR

.

Boeuf bourguignon all´italiana með ofnsteiktum kartöflum. Fyrir 4 til 6

1kg nautavöðvi að eigin vali skorinn í ca 2 cm bita á alla kanta
4 sellerístangir
4-6 gulrætur
4-6 hvítlauksrif
2 laukar
50-100 g sveppir
tvær dósir af hreinum tómötum í dós (maukað með töfrasprota)
1 flaska af ódýru frönsku rauðvíni
ca. 2-4 teskeiðar af salti eða eftir smekk
ca 1-2 teskeiðar af nýmöluðum pipar eða eftir smekk
8 einiber
4-6 blöð af lárviðarlaufi
1 msk timian eða eftir smekk má einnig nota herbs de provence
1 tsk nautakraftur
1 tsk sveppakraftur
1,5 kg kartöflur.

Kjötið steikt á pönnu við háan hita og saltað og piprað.
Grænmetið skorið passlega gróft og brúnað á pönnu og að sjálfsögðu er hvítlaukurinn settur síðastur á pönnuna svo að hann brenni ekki.
Tómatarnir maukaðir og settir í stóran pott.
Öllu saman hellt í pottinn og einiberjunum, lárviðarlaufunum, kraftinum, salti, pipar og timian bætt útí. Hálfri flösku af rauðvíninu hellt útí og suða látin koma upp.
Soðið í ca klst og þá er restinni af rauðvíninu hellt í pottinn og látið malla í klukkustund í viðbót við rólega suðu.

Kartöflurnar þvegnar vel og skornar í netta báta eða bita.
Eftir skurðinn er gott að láta kartöflurnar í heitt vatn í ca 10-20 mín. Þannig losa þær sterkju og verða bragðbetri og stökkari.

Kartöflurnar þerraðar og hellt í eldfast fat ólífuolíu hellt yfir og saltað nokkuð vel.

Ofninn hitaður að ca 200°c og kartöflurnar bakaðar í ca 40 mín til klst.

Best er að leyfa réttinum að standa í 10–15 mínútur áður en hann er borinn fram.

Berið fram með góðu brauði eða einföldu salati – og ekki gleyma rauðvínsglasinu.

Fleira áhugavert:

Útivist, hreyfing, líkamsræktPróteinríkar bláberjalummur frá Franco Noriega — Kókosterta — Brún lagkaka — Rúgmjölspartar — Ásta Snædís býður í kaffi — Hægeldaðir lambaskankar —

.

Fyrri færslaHumar í hvítlaukssósu
Næsta færslaLítil falleg jólasaga