Grafin nautalund

0
Auglýsing
Grafin nautalund Hótel rangá jólahlaðborð jólin naut nautalund grafin grafið kjöt Péter Jóni er yfirmatreiðslumaður
Grafin nautalund

Grafin nautalund

Jólahlaðborðið vinsæla á Hótel Rangá verður í boði fjórar helgar og byrjar 21. nóvember. MEIRA HÉR.

Hótel Rangá hefur einstakt aðdráttarafl – þar sameinast hlýlegt og rómantískt andrúmsloft, falleg náttúra og stórkostlegar veitingar. Veitingasalurinn er glæsilegur og hlýlegur í senn, og það er eitthvað við birtuna, kertaljósin og útsýnið sem gerir upplifunina alveg sérstaka.

Auglýsing

Yfirmatreiðslumaðurinn Péter Jóni tók hlýlega á móti mér og deildi með mér uppskrift að grafinni nautalund, sem verður einmitt á jólahlaðborði staðarins. Þetta er dásamlega bragðgóð og fáguð réttur sem fangar anda jólanna – einfaldur en lúxus í senn.

Það er svo sannarlega eitthvað töfrandi við Hótel Rangá á aðventunni – svooo fallegt og hlýlegt, allt smekklega framreitt og framúrskarandi í hverju smáatriði.

HÓTEL RANGÁJÓLIN —

.

Grafin nautalund

1 kg af nautalund (það má vera annar hluti nautsins, okkur þykir best að nota lundina)
2 kg salt
2 kg sykur

100 g einiber
50 g heilar kardimommur
50 g kanill
20 g svartur pipar
10 g szechuan pipar
30 g stjörnuanis
15 g negull
10 g rósapipar

Kryddjurtum er blandað saman með blandara þar til fínt duft myndast. Salti og sykri bætt við, öllu blandað saman.

Hreinsið nautalundina.

Setjið nautið ásamt kryddblöndunni í nógu stórt ílát. Passið að kryddblandan nái yfir kjötið. Látið nautið liggja í kryddblöndunni í allavega tvo daga, hversu langan tíma það tekur fyrir nautið að taka í sig bragð af kryddunum fer eftir stærðina á kjötbitanum.

Gott er að snúa kjötinu í blöndunni á 12 tíma fresti.

Skafið mestu kryddblönduna af kjötinu. Skerið niður í þunnar sneiðar og berið fram með trufflumæjónesi og salati.

Péter Jóni yfirmatreiðslumaður á Hótel Rangá

HÓTEL RANGÁJÓLIN —

.

Grafin nautalund frá Péter Jóni er yfirmatreiðslumanni. Færslan er unnin í samstarfi við Hótel Rangá.
Fyrri færslaPrag – matarborg með sögu
Næsta færslaSúkkulaðihjúpað döðlunammi með chilipistasíum