
Vínarterta með glassúr
Einhver allra glæsilegasti handverksmarkaður landsins er á Stöðvarfirði. Harðduglegar konur í bænum halda úti Salthússmarkaðnum í gamla félagsheimilinu. Þær eru ekki aðeins góðar að útbúa handverk, bakstur og önnur matargerð leikur í höndum þeirra og ég fékk að njóta þess þegar þær slógu upp veisluborði, SJÁ HÉR. Hlíf Herbjörnsdóttir bakaði og kom með Vínarterta með glassúr.
Munið að stoppa á Salthússmarkaðnum á Stöðvarfirði.
— VÍNARTERTUR — STÖÐVARFÖRÐUR — HANDVERK — KAFFIMEÐLÆTI —
.
Vínarterta með glassúr
1 kg hveiti
500 g sykur
500 g smjörlíki
2 tsk lyftiduft
1 tsk matarsódi
3-5 egg
vanilludropar.
Hnoðið deigið og fletjið það síðan út.
Úr deiginu verða ca 4-5 tertur tveir botnar lagðir saman með rabarbarasultu á milli.
Ofan á hverja tertu er settur glassúr og skreytt með skrautsykri.
Bakað við 180°C í ca 10 mín.
Glassúr:
250-300 g hreinn rjómaostur
ca 400 g flórsykur
1 tsk sítrónusafi
vanilludropar + bleikur matarlitur.
Hrærið rjómaostinn mjúkan, bætið svo flórsykrinum við í smáslöttum, svo sítrónusafinn, droparnir og matarliturinn.
Smakkið til. Skreytið að vild.


— VÍNARTERTUR — STÖÐVARFÖRÐUR — HANDVERK — KAFFIMEÐLÆTI —
.
