Auglýsing

Rauðrófusalat

Rauðrófusalat. Kræst hvað mér finnast rauðrófur góðar, sérstaklega þó ferskar en rauðrófusafinn er líka góður. Niðursoðnar rauðrófur tengir maður oftast við jólasteikina já eða sunnudagssteikina í gamla daga. Rauðrófur eru bráðhollar og ómótstæðilega góðar.

Rauðrófusalat

1 b rifnar rauðrófur

1 b rifnar gulrætur

1/4 b sólblómafræ

1 epli, saxað gróft

1 dl möndlur, saxaðar

safi úr einni appelsínu

safi úr 1/2 sítrónu

Blandið öllu saman og látið standa við stofuhita í amk klst.

Salat

Restin af rauðrófusalatinu fór svo saman við „venjulegt” salat

Auglýsing