Arabískur kjúklingur með möndlum og apríkósum

 Arabískur kjúklingur með möndlum og apríkósum Tagina Arabískur kjúklingur með möndlum og apríkósum Frakkland tagína tajina kjúklingaréttur kjúlli í ofni apríkósur
Arabískur kjúklingur með möndlum og apríkósum

 Arabískur kjúklingur með möndlum og apríkósum

Í síðustu Frakklandsferð okkar fengum við okkur ekta tajinu eða tagínu, sem er leirpottur (fyrir ofn eða eldavél) með háuloki sem mjókkar upp. Þetta er undurgóð matreiðsluaðferð. En auðvitað er ekki nauðsynlegt að eiga svona græju, réttinn má elda í bakaraofni á lágum hita í tvær klst.

FRAKKLANDKJÚKLINGURAPRÍKÓSUR

.

Arabískur kjúklingur með möndlum og apríkósum

Arabískur kjúklingur með möndlum og apríkósum

6-8 kjúklingalæri
1 grænt epli (lítið), skorið í bita
1 dl apríkósur
1/2-1 dl möndlur
2 laukar, saxaður smátt
4-6 tómatar, saxaðir
4 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir
2 msk góð olía
1 msk smjör, skorið í bita
salt og pipar
chili
1 msk kanill eða 1 kanilstöng
1/2 tsk engifer
1/2 tsk túrmerik.

Úrbeinið kjúklingalærin og raðið í eldfast form (mega líka vera með beinu).
Setjið lauk, hvítlauk, apríkósur, epli og möndlur í skál, bætið saman við olíu, smjöri og tómötum. Bætið við kryddinu.
Hellið úr skálinni yfir kjúklingalærin og blandið saman.
Látið standa þannig í um tvo tíma.
Eldið í 160°C heitum ofni í amk tvær klst eða þangað til kjúklingurinn er gegnum steiktur. Já eða í tagínu.

FRAKKLANDKJÚKLINGURAPRÍKÓSUR

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Freyðivínshlaup

Freyðivínshlaup

Freyðivínshlaup. Margir eru í vandræðum með eftirrétt um áramótin og vilja gjarnan prófa eitthvað nýtt. Freyðivínshlaup er afar hátíðlegt en minna má á að það er áfengt. Hér er það í staupum en einnig má setja það í eina skál og bera fram með öðrum eftirréttum, svona til að gefa fólki að bragða á. Ástæðan fyrir valinu á Jacob´s Greek í hlaupið er bæði vegna þess að það er fallegt á litinn og bragðgott.

Fyrri færsla
Næsta færsla