
Salthnetukaka
Heiðurspiltarnir og söngpípurnar Þorvaldur og Ásgeir Páll komu í kaffi í dag. Það er afar gaman að gefa þeim að borða, ætli megi ekki segja að þeir taki hraustlega til matar síns. Þeim finnst kardimommur og kanill passa vel saman með eplunum, annar nefndi að hátíðarútgáfan af kökunni gæti verið með súkkulaðibitum.
— SALTHNETUR — BÖKUR — ÁSGEIR PÁLL —
.

Salthnetukaka
4 græn epli
1 dl rúsínur
1 dl döðlur, saxaðar smátt
3 msk góð olía
1 væn msk kanill
1 tsk kardimommur
175 g smjör, mjúkt
1 msk sykur
175 g spelt eða heilhveiti
1dl salthentur
Afhýðið eplin og skerið í bita og setjið skál. Blandið saman við rúsínum, döðlum olíu og kryddi og setjið í botn í eldfast form. Hnoðið saman smjöri, sykri og heilhveiti og myljið yfir blönduna í forminu. Stráið salthnetum yfir. Bakið í ca 20-30 mín við 175°C
.
— SALTHNETUR — BÖKUR — ÁSGEIR PÁLL —
.