Auglýsing
Apríkósukúlur kókosmjöl apríkósur hráfæði raw food
Apríkósukúlur – alveg einstaklega góðar

Apríkósukúlur

Fátt sameinar fjölskyldur eins og undirbúningur fyrir jólin. Það er fínasta „fjölskylduföndur” að útbúa konfekt eða annað gott fyrir jólin. Annars eiga þessar kúlur alltaf við, ekkert sérstaklega um jólin.

.

Auglýsing

APRÍKÓSURKÚLURNAMMIKONFEKT

.

Apríkósukúlur

450 g apríkósur
1 dl möndlur
1 msk kókosolía, fljótandi
2 msk kókosmjöl
1 msk síróp
1 tsk kanill
1/2 tsk vanilla
smá chili
1/2 tsk salt
2 dl kókosmjöl

Setjið apríkósur, möndlur, kókosolíu, kókosmjöl, síróp, kanil, vanillu, chili og salt í matvinnsluvél og maukið (ekki samt of fínt). Mótið kúlur og veltið þeim upp úr kókosmjölinu. Kælið.

Apríkósukúlur apríkósur möndlur
Apríkósur og möndlur

.

APRÍKÓSURKÚLURNAMMIKONFEKT

— APRÍKÓSUKÚLUR —

.