Auglýsing
Rósmarín- og möndlukex hrökkkex möndlur rósmarín
Rósmarín- og möndlukex

Rósmarín- og möndlukex

Alltaf gott að eiga hollt og gott heimagert kex til að maula á eða bjóða þegar gesti ber að garði. Stórfínt með ostum, hummús, möndlusmjöri eða öðru góðu viðbiti. Já eða bara eitt og sér. Brettum upp ermar og bökum

.

MÖNDLURHRÖKKKEXMÖNDLUSMJÖRHUMMÚS

.

DSCF0143
Hráefnin í Rósmarín- og möndlukex

Rósmarín- og möndlukex

2 1/2 b hveiti
1 1/2 tsk matarsódi
1 tsk salt
2 b (soya)mjólk
1 msk hunang
1 msk púðursykur
2/3 b rúsínur
1 dl möndlur, saxaðar gróft
1 dl graskersfræ
1 dl sesamfræ
1 dl hörfræ
1 tsk edik
2 msk rósmarín

Blandið öllu saman og setjið í ílangt form. Bakið við 175° í um 25 mín.

Takið úr forminu og látið kólna.

Skerið brauðið í þunnar sneiðar, raðið þeim á bökunarpappír og bakið við 135° í 20-30 mín.  eða þangað til sneiðarnar eru gylltar á litinn. Getur þurft að snúa sneiðunum við.

Borðist með ostum, hummús, möndlusmjöri eða öðru góðu viðbiti.

MÖNDLURHRÖKKKEXMÖNDLUSMJÖRHUMMÚS

— RÓSMARÍN- OG MÖNDLUKEX —

❤️

Auglýsing