
Möndlu- og ostaterta
Að vísu er enginn ostur í þessari ostatertu en áferðin á fyllingunni minnir á ostatertu. Alveg silkimjúk fylling og chiliið í súkkulaðinu gerir gæfumuninn. Það er ekki nokkur leið að hætta að borða þessa tertu.
— HRÁTERTUR — MÖNDLUTERTUR — OSTATERTUR —
.

Möndlu- og ostaterta
Botn:
1 1/2 b möndlur
1/2 b mjúkar döðlur
2 msk kókosolía – fljótandi
2 msk vatn
1/3 tsk salt
1 b kókosmjöl
Súkkulaðifylling:
1/4 b maple síróp
1/2 b kakó
1/4 b kókosolía – fljótandi
smá chili
smá salt
Kókosfylling:
2 b kasjúhnetur, lagðar í bleyti í ca 2 klst.
1 b kókosrjómi (t.d. harði hlutinn af kókosmjólkinni eftir 30 mín í ísskáp)
1 tsk vanilla
1/4 b maple síróp
4 msk kókosolía – fljótandi
2 msk sítrónusafa
Botn: Setjið möndlur, döðlur, kókosolíu, vatn og salt í blandara og maukið (samt ekki of fínt), blandið kókosmjöli saman við. Setjið hringinn af kringlóttu litlu formi á tertudisk og þjappið „deiginu” þar ofan í. Kælið
Súkkulaðifylling: Blandið öllu saman í skál, hrærið kekkjalaust. Hellið yfir deigið og kælið.
Kókosfylling: Hellið vatninu af hnetunum, setjið þær í matvinnsluvél ásamt kókosrjóma, vanillu, sírópi, kókosolíu og sítrónusafa. Maukið vel. Hellið yfir súkkulaðifyllinguna. Kælið. Látið bíða í 4-6 tíma í ísskáp eða yfir nótt (sem er ennþá betra).
— HRÁTERTUR — MÖNDLUTERTUR — OSTATERTUR —
.