Kippo í Helsinki – TripAdvisor

Kippo í Helsinki – TripAdvisor finnland
Kippo í Helsinki fundum við á TripAdvisor

Kippo í Helsinki – TripAdvisor. Það er áhugavert að skoða heiminn með því að prófa það sem boðið er upp á matarkyns í mismunandi löndum. Síðustu ár höfum við notað TripAdvisor síðuna mikið. Þar skrifa gestir umsagnir og gefa stjörnur. Við vorum að koma heim frá Helsinki og notfærðum við okkur TripAdvisor.com síðuna aftur og aftur. Einn þeirra staða sem skoraði hátt heitir Kippo, lítill staður sem ekki fer mikið fyrir en stóð algjörlega undir öllum skrifum á síðunni góðu. Sennilega hefði Kippo farið framhjá okkur án TripAdvisor. Hvet ykkur til að skoða síðuna næst þegar þið leggið land undir fót, líka innanlands.

FINNLAND

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.