
Kökudiskur eða fyrirdiskur? Eða eitthvað allt annað?
Fríður skrifaði mér og sagðist alltaf þurfa að hugsa sig um þegar hún setti diskinn fyrir meðlætið við hliðina á bollanum.
Svarið er imbareglan: Viðhaldið til vinstri, þ.e. Vi-vi. Þannig er auðvelt að muna að kökudiskurinn eða hvað hann nú heitir, á að vera vinstra megin.
Í kjölfarið var sett fyrirspurn á fasbókina til að athuga hvaða nafn fólk hefði yfir þennan disk. Í minni barnæsku á Fáskrúðsfirði var alltaf talað um fyrirdisk. Aftur á móti var talað um kökudisk á bernskuheimili Bergþórs í Reykjavík, en mamma hans var úr Hörgárdal og pabbi er úr Hvítársíðu í Borgarfirði.
Svör bárust alls staðar af landinu og margt fróðlegt kom upp úr dúrnum. Það er mjög misjafnt hvað fólk nefnir þennan disk og í raun ekki hægt að búa til reglu eftir landshlutum, en þó má heita að F-diskarnir séu nokkuð ráðandi á Austur- og N-landi allt vestur á sunnanverða Vestfirði, þ.e.
— ÍSLENSKT — KAFFIMEÐLÆTI — EFTIRRÉTTIR — SMÁKÖKUR — FASBÓK — FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR — ÍSLAND — BORGARFJÖRÐUR — HÖRGÁRDALUR —
🇮🇸

Fyrirdiskar Að mestu á Austurlandi, þó ekki algengt þar.
Fylgidiskar Þekkist víða á landinu.
Kökudiskur virðist algengastur SV-lands , a.m.k. frá Vestmanneyjum og upp á Akranes, en finnst þó alls staðar á landinu, t.d. á Flateyri og alloft á Akureyri.
N- og A-lands nefna margir að kökudiskar séu diskarnir sem hafðir eru undir kökurnar, sem Sunnlendingar nefna oft föt, tertuföt eða tertudiska. Kona ein á Héraði segir: „Ílangur kökudiskur var t.d. fyrir jólaköku eða aðra formköku. Nafnið kökudiskur er því dregið af því. Smákökudiskar voru oft rúnnaðir og aðeins djúpir, ég held að engum heima hefði dottið í hug að kalla þessa diska tertudiska.”
Svo koma fyrir dæmi um mörg önnur heiti, í bland við fylgidiska, fyrirdiska og kökudiska:
Hliðardiskur (víðast á landinu eru dæmi um það)
Meðdiskur (víða, t.d. á Vopnafirði, Þistilfirði, Siglufirði, Skagafirði, Ströndum, en fannst ekki sunnanlands),
Meðlagsdiskur, eitt dæmi hef ég heyrt um meðlagsdisk frá konu sem fæddist í Höfðahverfi árið 1914.
Hjádiskur (A og N-lands)
Deserdiskur (Flóinn)
Lítill diskur (V-Hún. og Skaftaf.)
Lausadiskur (Akureyri og Hafnarf.)
Brauðdiskur (Skagaf.)
Gera má ráð fyrir að á heimilum hafi það heiti verið ráðandi sem húsfreyja hafði vanist, en þó eru oft notuð tvö eða fleiri heiti á heimili. T.d. segir einn svarenda: „Við töluðum um hjádiska og fylgidiska. Móðir mín var úr Ljósavatnsskarði og faðir minn úr Hjaltastaðaþinghá.“
Í athugasemdum kom margt fleira skemmtilegt fram. T.d. fékk ég skýringu á því að ég hafði heyrt diskinn undir bollanum, undirskálina, stundum nefndan undirbolla. Skýringin var þessi: „Algengt var að ef kaffið var mjög heitt, hellti fólk úr bollanum í undirbollann og saup/drakk af honum.“
Lengi má skemmta sér yfir tungumálinu og víst er að það er ekki gott að vera of fastur á sínu. Það sem maður sjálfur hefur vanist í bernsku er ekki endilega réttara en eitthvað annað. Í þessu efni þarf maður að hafa opinn huga eins og reyndar á flestum öðrum sviðum.
Endilega SENDIÐ PÓST með ábendingum.
— ÍSLENSKT — KAFFIMEÐLÆTI — EFTIRRÉTTIR —
🇮🇸

🇮🇸
— ÍSLENSKT — KAFFIMEÐLÆTI — EFTIRRÉTTIR — SMÁKÖKUR — FASBÓK — FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR — ÍSLAND — BORGARFJÖRÐUR — HÖRGÁRDALUR —
— KÖKUDISKUR, FYRIRDISKUR EÐA EITTHVAÐ ANNAÐ —
🇮🇸
Meðdiskur ólst upp á Siglufirði
Kökudiskur heyrði ég alltaf, en fer það ekki bara eftir því hvort um kökuboð sé að ræða eða matarboð? Ef mataboð, þá forréttadiskur, er frá Reykjavík.
Meðdiskur, held ég örugglega, á Ströndum.
Comments are closed.