Hótel Húsafell – þjóðlegur og alþjóðlegur veitingastaður í toppklassa

Hótel Húsafell Hótel Húsafell

Hótel Húsafell. Í senn þjóðlegur og alþjóðlegur veitingastaður í toppklassa, enda fær hann eina hæstu einkunn sem íslenskur staður fær á Trip Advisor.

— HÓTEL HÚSAFELL —

Það er liðin tíð að ferðamannastraumur á landsbyggðinni nái rétt yfir hásumarið. Núna hafa fjölmargir atvinnu allt árið af auknum straumi ferðamanna til landsins. Sem betur fer standa langflestir ferðaþjónustuaðilar sig einstaklega vel, svo vel að eftir því er tekið langt út fyrir landssteinana. Ábúendur á Húsafelli voru frumkvöðlar í ferðamennsku á Íslandi og stórhuga voru þau Sigrún og Kristleifur er þau snéru sér að ferðaiðnaðinum. Afkomendur þeirra eru ekki síður stórhuga, nýlegt hótel á Húsafelli ber þeim fagurt vitni. Þar er vandvirkni, metnaður og alúð í öllu stóru sem smáu. Stórfín, björt og vel útbúin herbergi og engu líkara en hótelið hafi staðið þarna langa lengi, svo vel fellur það inn í umhverfið.

Veitingasalurinn er bjartur, þar eru stórir gluggar, hátt til lofts og útsýnið er stórbrotið. Fjallasýnin engu lík með jöklana á aðra hönd og Hálsasveitina á hina. Það er ekki ofsögum sagt að útsýnið sé á við fagurt meistaramálverk.

Í notalegum veitingasalnum fengum við sex rétta sælkeraveislumáltíð sem hefði getað sómt sér á hvaða glæsiveitingastað heimsins. Fallegir og ólíkir matardiskar glöddu augað. Aðal atriðið og það sem toppar allt er maturinn. Sambland af alþjóðlegum veitingum en samt er svo stutt í íslenska tengingu.

Á Húsafelli er lipur þjónusta og þægileg. Glaðlegir þjónarnir snerust i kringum okkur og aðra gesti og létu öllum líða vel undir lágt stilltri íslenskri tónlist sem engin truflun var frá.

Hótel Húsafell
Lungamjúkt grafið ær-fillet

Lungamjúkt grafið ær-fillet með karamelíseruðum lauk og súrsúðum sinnepsfræjum var eins konar smakk í upphafi og lagði línurnar fyrir það sem á eftir kom.

 

Ceviche með kræklingi

Ceviche með kræklingi, lúðu, laxi og hörpuskel. Ceviche er orðið velþekkt á Íslandi, en það er sjávarfang sem hefur legið í sítruslegi, t.d. lime eða sítrónu, ættað frá S-Ameríku. Áferðin verður unaðslega mjúk, en ekki slepjuleg. Með þessu var borið fram saffran mæjónes og yuzu ískrap, sem gerði réttinn sprúðlandi ferskan.

 

Hótel Húsafell
Fiskisúpa með hörpuskel, bláskel og humri

Fiskisúpa með hörpuskel, bláskel og humri

Þá kom hreint út sagt himnesk fiskisúpa með hörpuskel, bláskel og humri. Með betri súpum og stökkt fennelið gaf henni ævintýralegan keim.

Nautacarpaccio með limegeli, vatnakarsa og avókadó-tartar var einstaklega mjúkt og bragðgott. (Við gleymdum að taka mynd af því)

Hótel Húsafell
Lambafillet og lambabógur með rauðrófum, rauðkáli, gulrófum og grænertumauki

Lambafillet og lambabógur með rauðrófum, rauðkáli, gulrófum og grænertumauki. Allt passlega eldað og grænmetið ekki ofsoðið, örlítið stökkt. Eins og þjónninn sagði: Það sem amma gerði, klikkar ekki, gamla góða sunnudagslærið með rauðrófum, rauðkáli og grænum baunum. Aðeins útfært á glaðlegan hátt.

 

Hótel Húsafell
Skyr með aðalbláberjum, hvítsúkkulaðikremi og brúnuðu súkkulaði. Þjóðlegur og afar góður eftirréttur

Hótel Húsafell. Í senn þjóðlegur og alþjóðlegur veitingastaður í toppklassa, enda fær hann eina hæstu einkunn sem íslenskur staður fær á Trip Advisor.

fallegt útsýni er úr veitingasalnum

 

Bláklukkur á Hótel Húsafelli Gott konfekt á Hótel Húsafelli

Texti: Albert Eiríksson albert.eiriksson (hjá) gmail.com

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.